Bíófréttir – Væntanlegt
Midway-orrustan
Nýjasta mynd stórmyndakóngsins
Rolands Emmerich (hér fyrir
ofan) er nú komin í viðamikla
lokavinnslu enda má búast við
að tæknibrellurnar í henni verði
margar og mikilfenglegar. Myndin
heitir Midway og dregur nafn
sitt af samnefndri sjóorrustu á
milli Bandaríkjanna og Japans
í heimsstyrjöldinni síðari sem
átti sér stað vestan við Midway-
eyju á Kyrrahafi 4.–7. júní 1942,
sex mánuðum eftir að japanski flugherinn hafði gert árás á
flota Bandaríkjanna í Pearl Harbour við Hawaii-eyjar. Í Midway-
orrustunni öttu kappi bandarísku flotaforingjarnir Chester Nimitz,
Frank Jack Fletcher og Raymond A. Spruance og japanskir kollegar
þeirra, Isoroku Yamamoto, Chūichi Nagumo og Nobutake Kondō,
og voru það þeir síðarnefndu sem gerðu árásina, en markmið
Japana var sem fyrr að þurrka út allan flota Bandaríkjanna á Kyrrhafi
svo þeir gætu verið þar einráðir. Þegar upp var staðið höfðu báðir
aðilar tapað nokkrum skipum en það sem gerði gæfumuninn var
að Bandaríkjamönnum tókst að skjóta niður eða eyðileggja allar
flugvélarnar sem Japanir voru með á skipum sínum og lama þá þar
með í lofti á meðan þeir sjálfir áttu nóg af flugvélum eftir. Talið er
að Bandaríkjamenn hafi misst 307 manns í orrustunni en Japanir
misstu meira en þrjú þúsund manns, þ. á m. alla sína flugmenn.
Myndin verður frumsýnd 8. nóvember og með aðalhlutverkin fara
þau Woody Harrelson, Luke Evans, Mandy Moore, Patrick Wilson,
Ed Skrein, Aaron Eckhart, Nick Jonas, Darren Criss og Dennis Quaid
ásamt fjölmörgum þekktum leikurum í aukahlutverkum.
Bill og Ted snúa aftur
Kvikmyndirnar Bill & Ted’s Excellent
Adventure (1989) og framhaldsmyndin Bill
& Ted’s Bogus Journey (1991) vöktu mikla
lukku fyrir þrjátíu árum en þar brugðu
þeir Keanu Reeves og Alex Winter sér í
hlutverk nördanna Teds og Alex sem með
aðstoð tímavélar ferðuðust um tíma og
rúm í góðlegri viðleitni til að bjarga heiminum frá glötun og lentu
auðvitað í hinum kostulegustu ævintýrum og aðstæðum um leið.
Á næsta ári, nánar tiltekið í ágúst 2020, verður frumsýnd ný mynd
um þá félaga, Bill & Ted Face the Music, þar sem aðdáendur þeirra
og aðrir áhugasamir fá að sjá hvað á daga þeirra hefur drifið síðan
þeir fóru í tímaferðalögin afdrifaríku og ekki síður hvað þeir eru að
bardúsa í dag, en eins og þeir muna sem sáu gömlu myndirnar
dreymdi þá Ted og Bill um að verða rokkstjörnur. Hermt er að í nýju
myndinni séu þeir enn að reyna að láta þann draum rætast.
Hundur hennar hátignar
Midway-orrustunni hafa verið gerð mikil og góð sagnfræðileg
skil og eru áhugasamir sem ætla að sjá myndina hvattir til að
kynna sér málin enda alltaf skemmtilegra að þekkja dálítið til
kringmstæðna þegar horft er á sannsögulegar myndir.
12
Myndir mánaðarins
Enginn bíómánuður getur liðið án þess
að boðið sé upp á góða teiknimynd og
í júlí verður það voffinn Rex sem heldur
uppi fjörinu, en hann er svo heppinn að
hafa fengið inni sem einn af hundunum
í hirð Elísabetar Englandsdrottningar.
Rex er ákaflega glaðlyndur hvolpur
sem á það til að fara í taugarnar á hinum
hundunum við hirðina með galsa sínum og stundum stríðni. Hann
er líka alveg óskaplega forvitinn og það á eftir að leiða til þess að
hann gleymir sér einn góðan veðurdag og ráfar inn á ókunnar
slóðir þar sem hann ratar ekki heim aftur. Til að gera málið verra
endar hann í ólöglegum hundaatsklúbbi og þar sem hann á frekar
litla möguleika í slíkum bardögum verða góð ráð dýr. Við fjöllum
betur um þessa skemmtilegu mynd í næsta blaði. Sjáið stikluna.