Myndir mánaðarins MM Júlí 2019 Bíóhluti | Page 4

Myndir mánaðarins Konungur ljónanna og Kóngulóarmaðurinn Þótt bíóhúsadagskrá kvikmyndahúsanna í júlí virðist í fyrstu ekki innihalda margar myndir þá er ekki allt sem sýnist vegna þess að alveg í lok júní eru tvær myndir frumsýndar sem voru í síðasta blaði, Annabelle Comes Home og Yesterday, auk þess sem sterkar og vinsælar myndir eins og Toy Story 4 sem var frumsýnd 19. júní eiga eftir að ganga vel langt fram í mánuðinn. ...verðlaunin fyrir besta bíónammið fær En hvað með það, þær sjö myndir sem kynntar eru í blaðinu að þessu sinni og bætast við júlídagskrána eru ekki af verri endanum og ber þar hæst forsíðumyndirnar að þessu sinni, The Lion King, eða Konung ljónanna, og nýja mynd um kóngulóarmanninn Peter Parker, Far From Home, sem sagt er að sé einnig ákveðin tímamóta- mynd í Marvel-kvikmyndaheiminum. Hér er annars dagskráin: Júlídagskrá bíóhúsanna: 3. júlí 3. júlí 10. júlí 10. júlí 17. júlí 24. júlí 31. júlí Hundur hennar hátignar Spider-Man: Far From Home Stuber Crawl The Lion King Anna Hobbs & Shaw Bls. 18 Bls. 19 Bls. 20 Bls. 21 Bls. 22 Bls. 24 Bls. 26 Kíkið svo einnig á DVD- og VOD-útgáfuna hinum megin í blaðinu, en þar kennir margra grasa líka eins og venjulega. Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Finndu þá sílið og taktu þátt í leiknum! Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna lítið síli sem hefur synt inn á eina síðuna hér bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þetta: Ef þú finnur sílið og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur svarið með skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem sílið er. Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu. Frestur til þátttöku er til og með 21. júlí. Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt í næsta tölublaði sem kemur út í lok júlí. TM Vinningshafar í síðasta leik, finndu býfluguna: Sandra Dís Ásmundsdóttir, Birkiholti 14, 225 Álftanesi Ingólfur Örn Jónsson, Bíldsbrún 1, 801 Selfossi Kristinn Þórisson, Hjallalundi 17i, 600 Akureyri Sif Björk Birgisdóttir, Steinagerði 19, 108 Reykjavík Benedikt H. Guðmundsson, Strokkhólsvegi 4, 801 Selfossi Takk fyrir þátttökuna! MYNDIR MÁNAÐARINS 306. tbl. júlí 2019 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected] Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 19.000 eintök 4 Myndir mánaðarins Litríkt bíónammi