Myndasyrpa
Það fylgir starfi frægustu leikaranna að fylgja eftir myndunum sem
þeir leika í, mæta á kynningar á þeim um allan heim og blanda geði við
aðdáendur. Tom Holland lætur ekki sitt eftir liggja í þessum efnum og
fór á dögunum í hringferð um Asíu þar sem hann var óspar á að uppfylla
draum margra sem vildu fá sjálfu með honum. Hér tekur hann eina slíka.
Eðalhjónin Annette Bening og Warren Beatty sem
hafa verið gift í 27 ár og eiga fjögur börn saman
mættu galvösk og brosandi á Tony-verðlauna-
hátíðina sem haldin var í Radio City Music Hall í
New York 9. júní, en á hana komast færri en vilja.
Þessi mynd er úr næstu Pixar-mynd sem til stendur
að frumsýna í mars á næsta ári og heitir Onward.
Hún segir frá ævintýrum álfabræðranna Barleys og
Ians sem halda út í heim að leita að göldrum og tala
með röddum þeirra Toms Holland og Chris Pratt.
Þriðja myndin um brúðuna Önnubelle og óendanlegan vilja
hennar til að láta illt af sér leiða verður frumsýnd um það leyti
sem þetta blað kemur út, en fyrstu dómar um hana hafa verið
mjög góðir. Hér bregða þær Vera Farmiga og Annabelle á leik
þegar myndin var forsýnd í Los Angeles á dögunum.
14
Myndir mánaðarins
Þeir Dave Bautista og Kumail Nanjiani mættu saman á MTV-kvikmynda-
og sjónvarpsverðlaunahátíðina 15. júní þar sem þeir voru fengnir til að
afhenda ein af verðlaunum kvöldsins enda ættu þeir að vera farnir að
þekkjast ágætlega eftir að hafa leikið saman í gamanmyndinni Stuber
sem verður einmitt frumsýnd 10. júlí og er kynnt hér aftar í blaðinu.
Þessa mynd birtum við hér til að minna
á að það eru bara sjö ár síðan The Hunger
Games var frumsýnd og gerði aðalleik-
konuna Jennifer Lawrence að stjörnu.
Bara sjö ár! Segið svo að tíminn líði hratt!
Þeir Tom Hanks og Tim Allen, sem hafa talað fyrir þá Vidda og Bósa ljósár í enskri
talsetningu Toy Story-myndanna, hittust enn á ný á dögunum í Disneylandi þar
sem þeir spjölluðu við fréttakonu um myndirnar fjórar og ekki síður reynsluna af
samvinnunni, en þeir hittust og kynntust fyrst þegar þeir unnu að fyrstu myndinni
og hafa síðan verið perluvinir. Þetta bráðskemmtilega viðtal má finna á YouTube.