Bíófréttir – Væntanlegt
Tilgangur lífsins – framhald Regn og ráspólar
A Dog’s Journey nefnist ný mynd um hund-
inn Bailey og framhald myndarinnar A Dog’s
Purpose sem var frumsýnd árið 2017 og
bræddi hjörtu margra, ekki síst dýravina.
Í nýju myndinni, sem frumsýnd verður í
ágúst, förum við aftur í heimsókn til Ethans, eiganda Baileys, og
eiginkonu hans, Hönnu, sem nú búa með ekkju sonar síns, Gloriu,
og dóttur hennar, Kathryn. Ólíkt tengdaforeldrum sínum og dóttur
er Gloriu ekki vel við hunda og ákveður að flytja burt, þeim Ethan
og Hönnu til mikillar mæðu því um leið lætur Gloria í veðri vaka
að þau muni ekki fá að hitta Kathryn á ný. Þegar Bailey veikist af
ólæknandi sjúkdómi biður Ethan hann um að koma aftur í öðrum
hundalíkama eins og hann hefur alltaf gert, en í þetta sinn til að
passa Kathryn. Við því á Bailey auðvitað eftir að verða og þar með
hefst ævintýrið á ný með öllum þeim húmor og hlýju sem fylgir. Og fyrir það kvikmyndaáhugafólk sem
kann að meta myndir þar sem hundar
eru í stórum hlutverkum megum við
til með að geta myndarinnar The Art of
Racing in the Rain sem verður frumsýnd
í september og kemur úr smiðju þeirra
sömu og gerðu Marley and Me-mynd-
irnar vinsælu á sínum tíma. Í þetta sinn er það hundurinn Enzo
sem er í forgrunni og segir okkur sögu sína og eiganda síns,
kappakstursáhugamannsins Dennys Swift sem Milo Ventimiglia
leikur. Myndin er byggð á bók eftir Garth Stein sem kom út árið
2008 og komst á metsölulista New York Times auk þess að hljóta
ýmis eftirsótt bókmenntaverðlaun. Með helstu hlutverk fyrir utan
Milo fara þau Amanda Seyfried, Kathy Baker, Gary Cole og Martin
Donovan auk Kevins Costner sem ljær Enzo mannlega rödd.
Dóra bjargar málunum
Í ágúst er komið að frumsýningu mynd-
arinnar um Dóru landkönnuð sem eins og
allir sjálfsagt vita er byggð á samnefndum
teiknimyndaþáttum frá Nickelodeon sem
um árabil, eða frá 2000 til 2015, nutu mikilla
vinsælda á hinum ýmsu sjónvarpsstöðum
um allan heim, þ. á m. á Íslandi. Bíða margir
nú spenntir eftir að sjá hvaða viðtökur Dóra fær á stóra tjaldinu
enda er því ekki að neita að þegar fyrst fréttist af gerð myndarinnar
hafi margir orðið skeptískir á hugmyndina. Þær efasemdaraddir
hafa þó smám saman þagnað ein af annarri og í stað þeirra er
kominn orðrómur um að myndin sé hin besta skemmtun, fyndin,
hröð og spennandi, og eigi alla möguleika á að hitta beint í mark
hjá t.d. þeim áhorfendum sem kunnu að meta Jumanji-myndina
sem frumsýnd var um jólin 2017. Með aðalhlutverkin í myndinni
fyrir utan Isabelu Moner sem leikur Dóru fara þau Eva Longoria,
Michael Peña, Eugenio Derbez, Jeffrey Wahlberg, Danny Trejo,
Q’orianka Kilcher, Temuera Morrison og Benicio Del Toro.
12
Myndir mánaðarins
Alveg eins og Bruce
Blinded by the Light nefnist nýjasta
mynd bresk-kenísku leikstýrunnar Gur-
inder Chadha sem er einna þekktust
fyrir snilldarmyndina Bend It Like Beck-
ham frá árinu 2002, en sú mynd var til-
nefnd til Golden Globe-verðlaunanna
sem besta mynd ársins og átti stóran
þátt í því að Keira Knightley var valin til
að fara með hlutverk Elizabethar Swann í Pirates of the Caribbean-
myndunum. Blinded by the Light verður frumsýnd 14. ágúst ef að
líkum lætur og sver sig í ætt við Bend It Like Beckham að því leyti
að hér er um uppvaxtarsögu og „feel good“-mynd að ræða, en hún
fjallar um ungan Breta af pakistönskum ættum sem býr í Luton
ásamt foreldrum sínum á níunda áratug síðustu aldar. Þegar hann
fellur kylliflatur fyrir tónlist og textum Bruce Springsteen setur hann
sér það markmið að fara til Bandaríkjanna og sjá goðið, þvert á vilja
foreldranna. Sjáið skemmtilega stikluna sem komin er á netið.