Myndir mánaðarins MM Janúar 2020 Bíóhluti | Page 38
The Gentlemen
Hver er kóngurinn?
Mickey Pearson er bandarískur glæpaforingi sem byggt hef-
ur upp öflugt marijúanaveldi í London. Þegar hann lætur á
sér skiljast að hann hyggist draga sig í hlé og vilji selja við-
skiptaveldið hugsa margir í undirheimunum sér gott til glóð-
arinnar og í gang fara alls kyns fléttur og blekkingar þar sem
enginn er annars bróðir í leik og ekkert er eins og það sýnist.
The Gentlemen er ellefta bíómynd leikstjórans og handritshöfund-
arins Guys Ritchie og að undanskildu hliðarsporinu sem hann
tók með Madonnu-myndinni Swept Away árið 2002 má segja að
myndir hans skiptist í tvo ólíka ferla, annars vegar þann fyrri þegar
hann gerði myndir eftir eigin söguhugmyndum og handritum
eins og Lock, Stock and Two Smoking Barrels, Snatch og RocknRolla
og hins vegar þann seinni þegar hann gerði Hollywood-myndir
eins og Sherlock Holmes-myndirnar, The Man from U.N.C.L.E., King
Arthur: Legend of the Sword og nú síðast Disney-myndina Aladdin.
Í The Gentlemen snýr hann aftur til upphafsins og hefur sjálfur sagt
í viðtölum að hún sverji sig í ætt við Lock, Stock and Two Smoking
Barrels og Snatch og sé í raun myndin sem hann ætlaði að gera á
eftir RocknRolla, þ.e. áður en Hollywood bankaði á dyrnar með til-
boð sem hann gat ekki hafnað. Og nú er bara að bíða til frumsýn-
ingardagsins 31. janúar og vona að Guy Ritchie hafi engu gleymt.
The Gentlemen
Glæpadrama / Svört kómedía
113
mín
Aðalhlutverk: Matthew McConaughey, Charlie Hunnam, Michelle
Dockery, Colin Farrell, Hugh Grant, Henry Golding, Jeremy Strong,
Eddie Marsan, Jason Wong og Eliot Sumner Leikstjórn: Guy Ritchie
Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 31. janúar
Matthew McConaughey leikur Bandaríkjamanninn Mickey Pearson
og Michelle Dockery leikur eiginkonu hans, Rosalind Pearson.
Punktar ....................................................
Þegar þetta er skrifað hefur lítið verið gefið upp um söguþráð The
Gentlemen annað en það sem kemur fram hér í innganginum fyrir
ofan og það litla sem ráða má af fyrstu stiklunni sem komin er á
netið. Sjálfur hefur Guy Ritchie sagt að persónan sem Hugh Grant
leikur sé þungamiðja sögunnar og sú sem koma mun mest á óvart.
l
Hugh Grant leikur náunga að nafni Fletcher sem fer sínar eigin
leiðir í von um að fá bita af kökunni sem Mickey býður upp á.
Veistu svarið?
Þeir eru margir sem telja myndirnar Lock, Stock and
Two Smoking Barrels, Snatch og RocknRolla ekki bara
bestu myndir Guys Ritchie heldur á meðal bestu
bresku mynda sem gerðar hafa verið. Hver fór með
aðalhlutverkið í þeirri síðastnefndu?
Þeir Colin Farrell og Charlie Hunnam leika þá Coach og Raymond sem
vinna fyrir Mickey og eru að reyna að hafa yfirsýn yfir gang mála fyrir
hans hönd. En kannski eru þeir ekki heldur allir þar sem þeir eru séðir.
Gerard Butler.
38
Myndir mánaðarins