Myndir mánaðarins MM Janúar 2020 Bíóhluti | Page 20

Playing With Fire Úr öskunni í eldinn Eftir að slökkviliðsmanninum og reykkafaranum Jake Car- son tekst ásamt vöskum samstarfsfélögum sínum að bjarga þremur systkinum úr brennandi húsi gerir vont veður það að verkum að þeir sitja uppi með þau í a.m.k. sólarhring. Hversu erfitt getur það verið fyrir þrautþjálfaða slökkviliðsmenn að gæta þriggja barna í 24 klukkustundir? Svar: Erfiðara en allt! Playing With Fire er sprellandi fjörug og fyndin mynd sem höfðar fyrst og fremst til yngri áhorfenda og inniheldur hverja skemmti- legu uppákomuna á fætur annarri. Systkinin þrjú reynast nefnilega með eindæmum uppátektarsöm, ekki síst tvö þau yngri sem líta á slökkvistöðina sem nokkurs konar skemmtigarð þar sem þau verða að prófa allt, ýta á alla takka og skrúfa frá öllu, Jake og félögum til mikillar mæðu. En þar með er bara lítill hluti sögunnar sagður ... Keegan-Michael Key og John Cena leika tvo af slökkviliðsmönnunum, þá Mark Rogers og Jake Carson, sem fá um allt annað en eld að hugsa þegar þeir sitja uppi með þrjú systkini eftir frækilegt björgunarafrek. Playing With Fire Gamanmynd 114 mín Aðalhlutverk: John Cena, Keegan-Michael Key, John Leguizamo, Brianna Hildebrand, Christian Convery, Finley Rose Slater, Judy Greer og Dennis Haysbert Leikstjórn: Andy Fickman Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík Frumsýnd 3. janúar Punktar .................................................... Playing With Fire er sjöunda bíómynd leikstjórans Andys Fickman (She's the Man, The Game Plan, Race to Witch Mountain, You Again, Parental Guidance og Paul Blart: Mall Cop), en hann er einnig þekktur fyrir leikstjórn og framleiðslu fjölda fjölskylduvænna sjónvarpsþátta eins og Liv and Maddie, Kevin Can Wait og núna síðast No Good Nick. l Þess ber að sjálfsögðu að geta að Playing With Fire skartar íslensku handbragði því um klippingu hennar sá Elísabet Rónaldsdóttir. l Það á ýmislegt óvænt eftir að koma upp í barnapössuninni. Veistu svarið? John Cena hefur átt vaxandi vinsældum að fagna sem leikari en hann reis til frægðar og frama í Bandaríkjunum sem wrestling-glímumaður þar sem karakter hans var (og er reyndar enn) orðhvass rappari. Hvert er aðal karaktersnafn hans? Helstu leikarar Playing With Fire ásamt leikstjóranum Andy Fickman komu saman þegar myndin var forsýnd í New York á dögunum. F.v. Brianna Hildebrand, Andy Fickman, Keegan-Michael Key, Tyler Mane, John Cena og Dennis Haysbert og fyrir framan þau sjáum við yngstu leikarana, Christian Convery og Finley Rose Slater. The Prototype. 20 Myndir mánaðarins