Myndir mánaðarins MM Janúar 2020 Bíóhluti | Page 10

Nú árið er liðið 10 Jennifer Lawrence gekk út á árinu og það sama má auðvitað segja um listaverkasalann og forstjóra Gladstone-listagallerísins í New York, Cooke Maroney. Athöfnin fór fram á Belcourt of Newport- setrinu í Rhode Island-ríki að viðstöddum rúmlega 150 gestum. Dwayne Johnson hefur í mörg ár kynnt og talað um Lauren Hashian sem „eiginkonu sína“ og því kom það flestum eiginlega meira á óvart að þau hafi ekki verið gift en að þau hefðu loksins gift sig 18. ágúst. Brúðkaupsgestir voru eingöngu nánustu vinir og fjölskylda. Þau Idris Elba og Sabrina Dhowre hittust fyrst á djassbar í Van- couver í Kanada fyrri hluta árs 2017 og hafa vart getað séð hvort af öðru síðan. Þau giftu sig í Marrakess-borg í Marokkó í apríl og stóð 200-manna veislan yfir í heila þrjá daga að afrískum sið. Leikarinn Miles Teller og dansarinn og fyrirsætan Keleigh Sperry létu pússa sig saman á Ritz Carlton Kapalua-glæsihótelinu á Hawaii- eyjunni Maui 1. september. Þau Miles og Keleigh hafa verið par síðan þau hittust fyrst í maí 2013 og trúlofuðu sig í ágúst 2017. Tónlistarmaðurinn Joe Jonas og leikkonan Sophie Turner gengu í hjónaband í Las Vegas í maí án viðhafnar en héldu svo ásamt fríðu föruneyti til suðurstrandar Frakklands í júní þar sem þau endur- tóku hjúskaparheit sín frammi fyrir fjölskyldu og vinum 29. júní. Það tók þau Katherine Schwarzenegger og Chris Pratt ekki nema eitt ár að ákveða að þau vildu eyða því sem eftir er af ævinni saman og blésu þau því til brúðkaups 9. júní í Montecito í Santa Barbara í Kaliforníu að viðstöddum nánustu vinum og fjölskyldu. Myndir mánaðarins