Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 6

Nú árið er liðið ... Tölublað númer 300 Já, blaðið sem þú ert hér að lesa er 300. tölublað Mynda mánaðarins sem um leið á 25 ára afmæli, en fyrsta tölublaðið kom út í febrúar árið 1994. Upphaflega hét blaðið Myndbönd mánaðarins enda fjallaði það fyrstu árin eingöngu um VHS- útgáfuna á Íslandi og var dreift á þeim fjölmörgu myndbandaleigum sem þá voru starfræktar um allt land. Seinna, í kringum 2002 þegar DVD-diskarnir voru komnir til sögunnar og voru farnir að leigjast meira en VHS-spólurnar, var heiti blaðsins breytt í Myndir mánaðarins og hefur það heiti haldið sér síðan fyrir utan að forskeytinu „Bíó“ var bætt við og forsíðurnar urðu tvær þegar kvikmyndahúsin byrjuðu að kynna sínar myndir í blaðinu árið 2006. Síðan hefur sú þróun orðið að nánast allar myndbandaleigur eru horfnar og í staðinn eru komnar sjónvarpsleigur Símans og Vodafone sem hafa nú um nokkurra ára skeið séð landsmönnum fyrir leiguefni. Blaðið hefur frá upphafi komið út rétt fyrir hver mánaðamót, ávallt verið ókeypis og varð fljótlega að mest lesna tímariti landsins. Þeirrar góðu stöðu hefur blaðið notið síðan og eftir að myndbandaleigurnar hurfu að mestu af markaðinum hefur því verið dreift í smásöluversl- unum, með Íslandspósti og í kvikmyndahúsum. Blaðið hefur um árabil verið prentað í 20 þúsund eintökum sem oftast eru uppurin á dreifingarstöðum upp úr miðjum mánuði, en netútgáfu þess hefur einnig verið að finna á kvikmyndir.is um margra ára skeið og á myndirmanadarins.is þar sem tengt er beint í stiklur myndanna og lesendum er boðið að gerast áskrifendur – ókeypis að sjálfsögðu. Við sem höfum staðið að útgáfu og gerð Mynda mánaðarins frá upphafi fögnum auðvitað þessum merku tímamótum. Á þann fögnuð ber þó nokkurn skugga að þessu sinni því um leið er þetta í fyrsta sinn sem við fögnum afmæli blaðsins án eins af máttarstólpum þess svo til frá upphafi, Ómars Friðleifssonar, sem lést langt um aldur fram úr krabbameini þann 13. október sl., aðeins 48 ára að aldri. Ómar, sem var alltaf kallaður Ommi, vann alla sína starfsævi hjá Sambíóunum og varð yfirmaður hjá Sam-myndböndum árið 1997 um leið og hann varð fulltrúi fyrirtækisins í stjórn Myndmarks, útgáfufélags blaðsins. Í þá daga var lítið hægt að nota netið til gagnaöflunar og allar upplýsingar sem fáanlegar voru um væntan- legar myndir voru í prentuðu formi sem þurfti að vinna bæði texta og myndefni úr. Ásamt öðru sá Ómar lengi vel skilmerkilega um að safna saman þessu efni fyrir hönd síns fyrirtækis til að hægt væri að gera blaðið og koma því út fyrir mánaðamót og var það samstarf ætíð gott og ánægjulegt. Árið 1999 varð Ommi svo formaður Mynd- marks og sat síðan í stjórninni eftir það og allt fram í júní 2016. Ommi var einlægur áhugamaður um kvikmyndir og tónlist og bjó yfir hafsjó af fróðleik um hvort tveggja. Hann átti óteljandi marga vini sem allir geta borið vitni um að þar fór einhver heilsteyptasti maður og besti vinur sem hægt er að hugsa sér, blíður, skemmtilegur, áhugasamur og með endalausan húmor fyrir bæði sjálfum sér og öllu öðru. Um leið bjó hann yfir þeirri þægilegustu og bestu nærveru sem hægt er að hafa. Omma verður sárt saknað af öllum sem þekktu hann og við á Myndum mánaðarins sendum ættingjum hans og nánustu aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur vegna frá- falls hans. Veröldin væri sannarlega betri ef allir væru eins og Ommi. 6 Myndir mánaðarins Íslandstenging ársins Þær ánægjulegu fréttir fyrir íslenska kvik- myndagerð bárust um miðjan desember að Óskarsverðlaunahafinn Jodie Foster hefði ákveðið að standa að bandarískri endurgerð myndarinnar Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og bæði leikstýra henni og leika hina kraftmiklu Höllu sem Halldóra Geirharðsdóttir leikur í frumútgáfunni, en fær þó væntanlega annað nafn í útgáfu Jodie. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir enda stutt síðan þessi ákvörðun var tekin og verður sannarlega gaman að fylgjast með framvindunni, svo ekki sé nú talað um þegar fyrsta stiklan verður frumsýnd og svo myndin sjálf. Þetta verður fimmta myndin sem Jodie leikstýrir en hún hefur fjórum sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik og tvisvar unnið hann, þ.e. fyrir myndirnar The Accused árið 1988 og Silence of the Lambs árið 1992. Um leið og við útnefnum þessa frétt sem Íslandstengingu ársins 2018 viljum við nota tækifærið og hvetja alla sem ekki hafa séð myndina að drífa í því, en hún verður sýnd nokkrum sinnum í Bíó Paradís á milli jóla og nýárs auk þess sem hún er fáanleg á sjónvarpsleigunum. Þess ber að geta að Kona fer í stríð var framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í ár en því miður komst hún ekki í gegnum niðurskurðinn og er úr leik í þeirri keppni. Leiksigur ársins Leiksigrar ársins, bæði hjá konum og körlum, eru auðvitað margir eins og allar tilnefningarnar til hinna ýmsu leiklistarverðlauna sýna en að öllum öðrum ólöstuðum er val okkar auðvelt að þessu sinni. Leiksigur ársins er leiksigur Lady Gaga í A Star is Born. Lady Gaga var auðvitað stórstjarna fyrir og virtur listamaður en hverjum gat dottið í hug (fyrir utan Bradley Cooper auðvitað) að hún ynni jafnafgerandi leiksigur og hún gerir í hlutverki Ally? Eiginlega engum, ekki einu sinni henni sjálfri, enda var hún mjög treg til að taka að sér svona stórt hlutverk og þurfti Bradley að beita sínum ýtrasta sjarma til að fá hana til að segja já. Ljóst er að hann vissi sínu viti og má eiginlega segja að hann hafi haft jafnmikla trú á henni sem leikkonu og persóna hans í myndinni sjálfri, Jack, hefur á Ally sem tónlistarkonu. Skemmtileg speglun.