Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 32

The Mule Enginn flýr að eilífu The Mule er nýjasta mynd Clints Eastwood sem jafnframt leikur aðal- hlutverkið, garðyrkjufræðinginn Earl Stone sem vegna fjárhagsvand- ræða tók upp á því á gamals aldri að smygla eiturlyfjum fyrir mexí- kóskan eiturlyfjahring frá landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til Michigan og Arizona þar sem hann kom þeim í hendur dreifenda. Sagan er byggð á sönnum atburðum og sækir efniviðinn í grein Sams Dolnick sem nefnist The Sinaloa Cartel’s 90-Year Old Drug Mule og birtist í The New York Times fyrir nokkrum árum. Þar sagði frá hinum níræða Leo Sharp (sem í myndinni er látinn heita Earl Stone) sem var handtekinn árið 2011 með hátt í 100 kíló af kókaíni í bíl sínum eftir að aksturslag hans hafði vakið athygli lögreglumanns. Í ljós kom að Leo hafði um tíu ára skeið stundað stórfellt kókaínsmygl beint fyrir framan nefið á landamæraeftir- litinu án þess að vekja nokkurn grun. Vakti málið að vonum athygli enda er Leo sennilega elsti maður sem handtekinn hefur verið sem burðardýr auk þess sem hann var nokkuð þekktur innan garðyrkjusamfélagsins í Bandaríkjunum, sérstaklega fyrir ræktun sína á liljum í ýmsum nýjum lita- afbrigðum og er eitt þeirra meira að segja nefnt í höfuðið á honum. Það er Nick Schenk sem skrifar handritið en hann skrifaði m.a. handrit hinnar góðu myndar The Judge og myndarinnar Gran Torino sem Clint leik- stýrði einmitt 2008 með sjálfum sér í aðalhlutverki. Með helsta hlutverk á móti honum í The Mule fer Bradley Cooper og er þetta í annað sinn sem þeir tveir vinna saman því eins og menn muna lék Bradley aðalhlutverkið í mynd Clints, American Sniper, sem var frumsýnd árið 2014. Með önnur stór hlutverk í myndinni fara svo þau Taissa Farmiga, Michael Peña, Andy Garcia, Laurence Fishburne, Dianne Wiest og dóttir Clints, Alison Eastwood. The Mule Sannsögulegt 116 mín Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Bradley Cooper, Taissa Farmiga, Michael Peña, Alison Eastwood, Andy Garcia, Laurence Fishburne og Dianne Wiest Leikstjórn: Clint Eastwood Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Ísafjarðarbíó, Eyjabíó, Bíóhúsið Selfossi, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó Frumsýnd 25. janúar Clint Eastwood leikur Earl Stone sem á gamals aldri ákvað að gerast eiturlyfjasmyglari fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring. Punktar .................................................... Þótt myndin sé að grunni til byggð á sögu Leos Sharp tók hand- ritshöfundurinn sér nokkurt skáldaleyfi við ritun þess í þágu kvik- myndalistarinnar. Hins vegar geta áhugasamir einnig kynnst hin- um kostulega og raunverulega Leo Sharp á netinu, m.a. á YouTube. l Earl Stone var garðyrkjufræðingur að mennt sem naut bæði frægðar og hylli fyrir einstaka ræktun sína á liljum. Veistu svarið? Clint Eastwood er fæddur 31. maí 1930 og verður því 89 ára á næsta ári. Um leið verða 64 ár liðin frá því hann steig sín fyrstu spor í leiklistinni en segja má að hann hafi fyrst vakið athygli sem Rowdy Yates í frægum sjónvarpsþáttum árið 1959. Hvaða þáttum? Bradley Cooper leikur lögreglumanninn Colin Bates sem rann- sakaði athæfi Earls eftir að hann hafði verið handtekinn. Rawhide. 32 Myndir mánaðarins