Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 26

Glass Sýndu hvað þú getur Eftir að Beast, 24. persónan, sem býr innra með Kevin Wendell Crumb og ræður yfir ofurhraða og ofurkröftum, tekur stjórn á líkama hans kemur til kasta Davids Dunn að stöðva hann fyrir fullt og allt. Það á hins vegar eftir að reynast hægara sagt en gert, ekki síst vegna afskipta Elijah Price, öðru nafni hr. Glass. Það varð nokkuð ljóst í lok myndarinnar Split fyrir tveimur árum að við mættum eiga von á framhaldsmynd þar sem leikstjórinn M. Night Shyamalan myndi etja saman aðalpersónunni úr Split, Kevin Wendell Crumb (og hans innri karakterum) og aðalpersónunum úr Unbreakable frá árinu 2000, ofurmenninu David Dunn og hinum brothætta glæpamanni Elijah Price (herra Glass), og ljúka um leið trílógíu sem nefnd hefur verið Eastrail 177 eða The Unbreakable- serían. Shyamalan gaf það reyndar fljótlega út að myndin yrði frumsýnd um miðjan janúar 2018 en þurfti áður en hann gat hafist handa við gerð hennar að fá kvikmyndafyrirtækin Buena Vista Intl. sem er í eigu Disney og Universal Pictures til að gefa grænt ljós á samstarf því það fyrrnefnda átti réttinn að Unbreakable en það síðarnefnda að Split. Það tókst og er það í fyrsta sinn sem þessi risafyrirtæki vinna saman að gerð myndar. Síðan hafa margir beðið spenntir eftir útkomunni enda má alveg búast við að sagan í Glass, sem að mestu hefur verið haldið leyndri og því ekki hægt að fara nánar út í, eigi eftir að koma kvikmyndahúsagestum í opna skjöldu. Glass Tryllir Aldurstakmark óákveðið fyrir prentun 128 mín Aðalhlutverk: Bruce Willis, James McAvoy, Samuel L. Jackson, Anya Taylor-Joy, Sarah Paulson, Luke Kirby og Spencer Treat Clark Leikstjórn: M. Night Shyamalan Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Smárabíó, Ísafjarðarbíó, Eyjabíó, Bíóhúsið Selfossi, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó Frumsýnd 18. janúar Samuel L. Jackson, James McAvoy og Bruce Willis í hlutverkum sínum í Glass sem þeir Elijah Price, Kevin Wendell Crumb og David Dunn. Punktar .................................................... Glass er þrettánda bíómyndin sem M. Night Shyamalan leikstýrir og eins og oft áður í myndum sínum leikur hann sjálfur smáhlut- verk í henni, persónuna Jay sem kom reyndar líka fram í Split. l Sú beiðni fylgir myndinni að þeir sem sjá hana segi ekki væntan- legum áhorfendum frá söguþræðinum, síst af öllu frá endinum. l Veistu svarið? Áður en þeir í Bruce Willis og Samuel L. Jackson léku hvor á móti öðrum í Die Hard with a Venge- ance árið 1995 og Unbreakable árið 2000 höfðu þeir leikið í frægri mynd árið 1994 sem reyndist margföld verðlaunamynd. Hvaða mynd var það? Anya Taylor-Joy snýr aftur í hlutverki þeirrar sömu og hún lék í Split, Casey Cooke, en við látum þess ógetið hvað hún gerir í þetta sinn. Pulp Fiction. 26 Myndir mánaðarins