Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 20

Nonni norðursins 2: Lyklarnir að konungdæminu Nonni og félagar koma aftur! Ísbjörninn viðkunnanlegi Nonni norðursins sem bjargaði mál- unum í fyrstu myndinni um hann og vini hans snýr hér aftur til að taka við gulllyklinum að New York þar sem hann er hetja og heiðursgestur. En skjótt skipast veður í lofti og áður en varir er Nonni kominn á kaf í ný vandamál sem hann verður að leysa. Þeir sem gaman höfðu af fyrri myndinni um Nonna munu örugg- lega hafa gaman af endurkomu hans þar sem hann þarf ekki bara enn á ný að sanna hvers hann er megnugur heldur tekur ásamt félögum sínum á Norðurpólnum þátt í íshokkíleik aldarinnar! Nonni norðursins 2 Lyklarnir að konungdæminu Teiknimynd 91 mín Ísl. talsetning: Steinn Ármann Magnússon, Orri Huginn Ágústsson, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Hjálmar Hjálmarsson, Magnús Ólafsson, Vaka Vigfúsdóttir, Þórunn Jenný Qingsu Guðmundsdóttir, Sigurbjartur Atlason, Agla Bríet Einarsdóttir og m.fl. Leikstjórn: Tómas Freyr Hjaltason og Árni Ólason Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 4. janúar 20 Myndir mánaðarins