Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 18

Robin Hood Allt fyrir réttlætið og ástina! Þjóðsögunni þekktu um alþýðuhetjuna Hróa hött sem ásamt félögum sínum í Skírisskógi rændi þá ríku til að gefa þeim fá- tæku eru gerð ný og uppfærð skil í þessari stórskemmtilegu og fjörugu mynd þar sem bardaga- og áhættuatriðum er gert hátt undir höfði. Auk þess má fullyrða að Hrói sjálfur hefur aldrei verið jafn fimur með bogann og hann er í þessari mynd. Sem fyrr snýst barátta Hróa hattar og manna hans um að varna því að Jón fógeti í Nottingham nái að sölsa undir sig völd og peninga sem tilheyra ekki honum. Sagan hefst þó nokkrum árum fyrr þegar Hrói var lávarður í Nottingham og átti í ástarsambandi við Marion heitmey sína og frænku hins gjörspillta Jóns fógeta. Þegar Jón stíar þeim í sundur með því að senda Hróa í krossferð til Austurlanda tekst honum um leið að sölsa undir sig landareign hans. Fimm árum síðar þegar Hrói snýr aftur úr krossferðinni og kemst að því að hann er talinn hafa verið drepinn í orrustu ákveður hann að breyta sér í hinn hettuklædda Hróa hött, koma fram hefndum á Jóni og hans mönnum og endurheimta um leið ástir Marion ... Robin Hood Ævintýri 116 mín Aðalhlutverk: Taron Egerton, Jamie Foxx, Ben Mendelsohn, Eve Hewson, Jamie Dornan, Tim Minchin, Paul Anderson, F. Murray Abraham og Ian Peck Leikstjórn: Otto Bathurst Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Ísafjarðarbíó, Eyjabíó, Bíóhúsið Selfossi, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó Frumsýnd 4. janúar Taron Egerton, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Eggsy í Kingsman-myndunum, leikur hetjuna bogfimu Hróa hött. Punktar .................................................... Taron Egerton lærði bogatæknina sem hann beitir í myndinni hjá danska bogasnillingnum Lars Andersen, en myndbönd þar sem Lars sýnir leikni sína með bogann og örvarnar hafa notið mikilla vinsælda á YouTube. Fyrir utan að vera hittinn er hann svo snöggur að skjóta að undrum sætir og hefur hraða hans verið líkt við hrað- ann sem Legolas réð yfir í LOTR- og Hobbit-myndunum. l Ben Mendelsohn leikur erkióvin Hróa hattar, fógetann í Nottingham. Veistu svarið? Hinn skemmtilegi leikari Taron Egerton sem sló fyrst í gegn í fyrri Kingsman-myndinni og leikur hér Hróa hött mun næst birtast okkur í hlutverki þekkts tónlistarmanns í myndinni Rocketman eftir Dexter Fletcher. Hvaða tónlistarmanns? Jamie Foxx leikur litla-Jón, einn helsta bandamann Hróa hattar. Eltons John. 18 Myndir mánaðarins