Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 25
The Wife
Lestu á milli línanna
Þegar rithöfundinum Joseph Castleman er tilkynnt að hann hafi hlotið
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum taka alvarlegir brestir í hjónabandi hans
og eiginkonunnar Joan að koma upp á yfirborðið, ekki bara vegna ótryggðar
hans heldur einnig vegna þess að hann hefur aldrei skrifað eina einustu bók.
The Wife er gerð af sænska leikstjóranum Birni Runge eftir handriti þrefalda
Emmy-verðlaunahafans Jane Anderson sem byggði það á samnefndri bók Meg
Wolitzer. Þetta er áhrifarík saga sem spannar líf Castleman-hjónanna Josephs og
Joan allt frá því að þau hittust fyrst þegar hann var kennari í kvennaskóla sem
hún var nemandi í. Joan, sem sjálf var þá
efnilegur rithöfundur, hreifst af ákefð
hans í kennslunni og ástríðunni fyrir bók-
menntum og svo fór að þau fóru að draga
sig saman þrátt fyrir að Joe væri kvæntur.
Við segjum ekki meira um söguþráðinn
hér annað en að um leið og við kynnumst
forsögunni betur fylgjum við þeim Joe
og Joan til Stokkhólms þar sem hans er
vænst til að taka við verðlaununum. Þar
á síðan eftir að koma til óumflýjanlegs
uppgjörs með mjög óvæntum endi.
The Wife
Drama
100
mín
Aðalhlutverk: Glenn Close, Jonathan Pryce, Max Irons,
Christian Slater og Elizabeth McGovern Leikstjórn: Björn
Runge Bíó: Sambíóin Kringlunni, Akureyri og Keflavík
Frumsýnd 15. febrúar
Chris Pratt er eins og venjulega hlaðinn verk-
efnum og verður væntanlega á fullu í febrúar
við að kynna nýju Lego-myndina, enda talar
hann þar fyrir tvær af aðalpersónunum.
Myndin var tekin í Hollywood 25. janúar.
The Wife þykir afar vel gerð og sláandi,
ekki síst vegna frábærs leiks Glenn Close
enda hlaut hún Golden Globe-verðlaun-
in á dögunum fyrir hann og er nú einnig
tilnefnd til bæði BAFTA- og Óskars-
verðlauna fyrir besta leik í aðalhlutverki
kvenna. Þetta er mynd sem skilur mikið
eftir sig og allt áhugafólk um kvikmyndir
ætti hiklaust að fara og sjá í bíó.
Anne Hathaway verður áreiðanlega líka á fullu í
febrúar við að kynna sína nýjustu mynd, Serenity,
þar sem hún leikur aðalkvenhlutverkið á móti
Matthew McConaughey. Hún skartaði þessum
flotta kjól á frumsýningunni í New York.
Glenn Close og Jonathan Pryce leika
Castleman-hjónin Joan og Joe sem
hafa notið velgengni í lífinu ... eða það
halda a.m.k. allir sem þekkja ekki til.
Glen Close heldur hér kraftmikla þakkarræðu
sína eftir að hafa hlotið Golden Globe-verð-
launin fyrir leik sinn í myndinni The Wife. Hún
er nú einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna og
ætti þau verðlaun líka sannarlega skilið.
Myndir mánaðarins
25