Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 24
Vesalings elskendur
Saga af bræðrum
Valentínusarmynd ársins 2019 er rómantíska gamanmyndin
Vesalings elskendur sem verður frumsýnd 14. febrúar. Segja
má að myndin sé ákaflega skemmtilegt innlit í líf tveggja
bræðra, Óskars og Magga, sem langar báða til að finna þá einu
réttu en bera sig misjafnlega að við að láta drauminn rætast.
Fyrir utan að þeir Óskar og Maggi eru tiltölulega rólegir í tíðinni eiga
þeir það sameiginlegt að hafa ekki átt auðvelt með að láta sambönd
sín við hitt kynið ganga upp. Hins vegar eru þeir gjörólíkir að því
leyti að á meðan Maggi hoppar úr einu sambandinu í annað, alltaf
í þeirri vissu að í þetta sinn hafi hann hitt hina einu réttu, forðast
Óskar að bera tilfinningar sínar á borð og er því mun óreyndari en
bróðir hans í þessum efnum. Inn í söguna og um leið inn í málefni
bræðranna blandast síðan ýmsar persónur sem tengjast þeim
vinar- eða fjölskylduböndum og að sjálfsögðu nokkrar konur, þ. á
m. dýralæknirinn Anna sem Óskar hefur lengi verið hrifinn af ...
Vesalings elskendur
Gamanmynd / Rómantík
Jóel Sæmundsson og Björn Thors leika bræðurna Magga og Óskar sem
þrátt fyrir að vera bæði góðir vinir og samrýndir hafa mjög ólíka sýn
á ýmsa hluti, ekki síst hvað varðandi ástamál og samskipti við konur.
105
mín
Aðalhlutverk: Björn Thors, Jóel Sæmundsson, Sara Dögg
Ásgeirsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Hafdís Helga Helgadóttir,
Álfrún Örnólfsdóttir, Sigurður Karlsson og Þóra Karítas Árnadóttir
Leikstjórn: Maximilian Hult Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri og Selfossbíó
Frumsýnd 14. febrúar
Atburðarásin, og um leið ástalíf Óskars, tekur nýja stefnu þegar dýra-
læknirinn Anna sem Óskar hefur verið ástfanginn af í laumi í mörg ár
skilur við eiginmann sinn. Anna er leikin af Söru Dögg Ásgeirsdóttur.
24
Myndir mánaðarins
Punktar ....................................................
Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Svíinn Maximilian
Hult sem átti að baki fjölda stutt- og heimildarmynda, tónlistar-
myndbönd og auglýsingar þegar hann sendi frá sér sína fyrstu
bíómynd, Hemma, árið 2013. Sú mynd hlaut fjölda verðlauna og
viðurkenninga, þ. á m. tilnefningu til sænsku kvikmyndaverð-
launanna og tvær tilnefningar til íslensku Edduverðlauna enda var
hún eins og Vesalings elskendur gerð í samvinnu við íslenska aðila.
l
Edda Björgvinsdóttir leikur stjúpmóður bræðranna, Guðrúnu, sem
lætur fátt raska ró sinni. Sigurður Karlsson leikur föður bræðranna.