Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 22

Alita: Battle Angel Hvað er hún? Þegar tæknifræðingurinn Ido finnur höfuð og búk vélmennis á ruslahaug ákveður hann að taka það með sér heim og reyna að kveikja á því á ný. Það tekst og eftir að hafa smíðað nýja útlimi á vélmennið nefnir Ido það Alitu. Í ljós kemur að Alita man ekki neitt úr fortíðinni eða hvaða hlutverki hún gegndi en uppgötvar í staðinn að hún býr yfir gríðarlega öflugri bar- dagatækni sem hún fær fljótlega ástæðu til að láta á reyna. Alita: Battle Angel, sækir efniviðinn í samnefnd manga-teiknimyndablöð japanska rithöfundarins Yukito Kishiro sem komu út á tíunda áratug síðustu aldar og nutu mikilla vinsælda. Það eru þeir félagar James Cameron og Jon Landau (Titanic, Avatar) sem framleiða myndina og skrifaði James einnig handritið ásamt Laetu Kalogridis (Shutter Island, Terminator Genisys) og leikstjóra myndarinnar, Robert Rodriguez (Sin City, Machete). Útkoman ætti að vera ævintýra-, spennu- og hasarmynd í algjörum sérflokki enda var ekkert til sparað við gerð hennar, síst af öllu hvað tölvubrellurnar varðar sem eru áberandi flottar eins og sjá má í stiklunum ... Alita: Battle Angel Ævintýri 122 Christoph Waltz leikur tæknifræðinginn Ido sem finnur Alitu upp- haflega á ruslahaugum og gæðir hana nýju lífi. Alita er leikin af Rosu Salazar sem er einna best þekkt úr Maze Runner-myndunum. mín Aðalhlutverk: Rosa Salazar, Keean Johnson, Mahershala Ali, Jennifer Connelly, Christoph Waltz, Casper Van Dien, Eiza González, Lana Condor, Ed Skrein og Michelle Rodriguez Leikstjórn: Robert Rodriguez Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóin Egilshöll og Álfabakka, Borgarbíó Akureyri og Selfossbíó Frumsýnd 14. febrúar Punktar .................................................... Í allt voru gefnar út níu sögur um Alitu og ævintýri hennar og eftir því sem okkur skilst hér á Myndum mánaðarins var efnið í myndina sótt í fyrstu fjórar sögurnar. Gangi Alita: Battle Angel vel í kvikmynda- húsum má allt eins gera ráð fyrir að framhaldsmyndir verði gerðar. l Þrátt fyrir fíngert útlitið býr Alita yfir ógnarkröftum. Veistu svarið? Bandaríski leikarinn Mahershala Ali leikur stórt hlutverk í Alita: Battle Angel, en hann er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem lögreglumað- urinn Wayne Hays í True Detective og fyrir að leika píanóleikarann Don Shirley í ... hvaða mynd? Þeir James Cameron og Robert Rodriguez eru aðalmennirnir á bak við gerð myndarinnar. James framleiðir hana og Robert leikstýrir og þeir skrifuðu handritið í sameiningu ásamt Laetu Kalogridis. Green book. 22 Myndir mánaðarins