Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 40

Tölvuleikir PlayStation Classic Þetta byrjaði allt í Japan árið 1994 þegar fyrsta Play- Station-tölvan kom út, en hún átti eftir að breyta öllu. Nú getur þú endurupplifað þetta tímabil í leikjasögunni með hinni nýju PlayStation Classic-leikjatölvu. Með pakkanum fylgja 20 af bestu PlayStation 1-leikjunum og eru þar á meðal leikirnir Final Fantasy VII, Ridge Racer Type 4, Tekken 3, Grand Theft Auto 1, Jumping Flash!, Destruction Derby og fleiri. PlayStation Classic er minnkuð útgáfa af upphaflegu tölvunni og fylgja enn fremur með tveir stýripinnar sem eru eins og þeir upprunalegu. Með tölvunni fylgir einnig HDMI-tengi og er hún tengd beint í sjónvarpið eða tölvuskjáinn. Tegund: Leikjatölva Kemur út á: PS PEGI aldurstakmark: Leyfð öllum Útgáfudagur: 3. desember Framleiðandi: Sony Útgefandi: Sena Leikirnir með vélinni eru: Battle Arena Toshinden, Cool Boarders 2, Destruction Derby, Final Fantasy VII, Grand Theft Auto, Intelligent Qube, Jumping Flash!, Metal Gear Solid, Mr. Driller, Odd- world: Abe’s Oddysee, Rayman, Resident Evil Director’s Cut, Revelations: Persona, Ridge Racer Type 4, Super Puzzle Fighter II Turbo, Syphon Filter, Tekken 3, Tom Clancy’s Rainbow Six, Twisted Metal og Wild Arms. l 40 Myndir mánaðarins