Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 35

It Comes at Night – A Time to Dance Óvinurinn er í andrúmsloftinu It Comes at Night gerist í ónefndri framtíð þegar dularfull veiki hefur lagt þorra fólks af velli og enginn er eftir sem getur fundið lækningu við henni. Djúpt inni í skógi nokkrum hafa hjónin Paul og Sarah komið sér fyrir ásamt syni sínum Travis til að forðast veikina sem eirir engum sem hefur á annað borð sýkst af henni. Þar sem engin lækning er til og verður ekki fundin úr þessu er eina leiðin til að forðast dauðann að veikjast ekki. Kvöld eitt brýst maður einn, Will, inn í hús þeirra í leit að vistum fyrir sig og sína fjölskyldu enda heldur hann að það sé mannlaust. Um leið setur hann af stað alveg skelfilega atburðarás ... Punktar .................................................................. HHHHH - N.Y. Times HHHHH - Time Out HHHHH - H. Reporter HHHH 1/2 - Indiewire HHHH 1/2 - Slate HHHH 1/2 - RogerEbert.com HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH 1/2 - IGN HHHH 1/2 - Total Film HHHH - Empire HHHH - L.A. Times HHHH - Screen International Myndin hefur eins og sést hlotið frá- bæra dóma gagnrýnenda og er með 7,8 í meðaleinkunn á Metacritic, en eins A Nerve-Shredding Thriller - Time Out. l 116 VOD mín Aðalhl.: Joel Edgerton, Christopher Abbott, Carmen Ejogo og Kelvin Harrison Jr. Leikstj.: Trey Edward Shults Útg.: Myndform Tryllir 21. desember og gefur að skilja er hún alls ekki fyrir hjartveika eða þá sem eiga erfitt með að þola mikla og stanslausa spennu. Hafandi sagt það ber að benda á að hér er hvorki um að ræða uppvakn- ingamynd né „slasher“ heldur kemur spennan annars staðar frá. It Comes at Night er önnur mynd leikstjórans Treys Edwards Shults, en sú fyrri, Krisha, var af mörgum talin ein besta mynd ársins 2015. l Joel Edgerton og Kelvin Harrison Jr. í einu af mörgum spennuatriðum myndarinnar. Ævintýrið um Ronju í nýjum búningi Þessi 26 þátta teiknimyndasería, sem byggð er á hinni víðfrægu og ástsælu bók Astridar Lindgren, hefur verið sýnd á RÚV og er eftir japanska listamanninn Gorô Miyazaki, son Hayaos Miyazaki sem gerði m.a. Spirited Away og Princess Mononoke. Ævintýrið um Ronju ræningjadóttur kom út árið 1981 og skipaði sér þegar í flokk með bestu bókum Astridar Lindgren, þ. á m. bókunum um Línu langsokk og Emil í Kattholti. Sagan er um hana Ronju sem elst upp í ræningjakastala á miðöldum í Svíþjóð. Hún verður fljótlega mjög forvitin um umhverfi sitt og lendir í ýmsum ævintýrum í skóglendinu um- hverfis kastalann þar sem alls kyns kynjaverur hafast við. Þegar hún síðan kynnist jafnaldra sínum, strák sem reynist sonur svarinna andstæðinga foreldra hennar, breytist allt ... Þessi útgáfa inniheldur þætti 17 til 20 sem hver fyrir sig er 25 mínútur að lengd. Þess má geta að þættirnir hlutu alþjóðlegu Emmy-verðlaunin 2016 í flokki teiknaðs barnaefnis. VOD 100 mín Teiknimyndir með íslensku tali um ævintýri Ronju ræningjadóttur Útgefandi: Myndform Barnaefni 21. desember Myndir mánaðarins 35