Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 32

A Simple Favor Hvað kom fyrir Emily? Stephanie er vídeóbloggari í smábæ í Connecticut sem fjallar í bloggi sínu um ýmislegt sem viðkemur mömmum, uppeldi og heimilishaldi. Þegar einn af íbúum bæjarins, hin fagra en dularfulla Emily, sem Stephanie hafði kynnst nokkrum vikum fyrr, hverfur sporlaust, ákveður hún að rannsaka málið sjálf. A Simple Favor er byggð á samnefndri bók eftir rithöfundinn Darcey Bell sem kom út í ársbyrjun 2017 og vakti strax það mikla athygli að kvik- myndarétturinn að henni seldist eins og skot. Ástæðan er fyrst og fremst sú að hér er um afar snjalla fléttu að ræða þar sem ekkert er eins og það sýnist í fyrstu og endar sagan á vægast sagt óvæntan hátt. Af þeim sökum er engum greiði gerður með því að fara nánar út í atburðarásina enda er langskemmtilegast að sjá svona fléttu- myndir án þess að vita of mikið og leyfa frekar framvindunni að koma sér algerlega á óvart. Það gerir þessi saga svo sannarlega ... A Simple Favor Sakamálamynd / Ráðgáta DVD Anna Kendrick leikur vídeóbloggarann Stephanie, en hún og nýjasta vinkona hennar, Emily, sem Blake Lively leikur, eru gerólíkar, bæði að upplagi og í öllum háttum. Þegar Emily hverfur sporlaust eftir að hafa hringt og beðið Stephanie að gera sér greiða hefst alveg mögnuð flétta. 117 VOD mín Aðalhlutverk: Blake Lively, Anna Kendrick, Henry Golding, Rupert Friend, Ian Ho, Joshua Satine, Eric Johnson, Jean Smart og Linda Cardellini Leikstjórn: Paul Feig Útgefandi: Myndform 20. desember Punktar .................................................... HHHH 1/2 - IGN HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHHH - E.W. HHHH - Observer HHHH - Film Threat HHHH - Total Film HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - R. Stone HHH 1/2 - R.Ebert.com Segja má að leikstjóri myndarinnar, Paul Feig, skipti hér um gír en hann er þekktastur fyrir gamanmyndir sínar á undanförnum árum, t.d. Bridesmaids, The Heat, Spy og Ghostbusters: Answer the Call. l Líf vídeóbloggarans Stephanie umturnast þegar Emily hverfur, enda ákveður hún að komast til botns í málinu upp á eigin spýtur. Veistu svarið? Blake Lively hefur sýnt að hún er ákaflega fjölhæf leikkona, en allar götur frá því að hún og Ryan Reynolds giftust hefur samt fjölskyldan og barna- uppeldið átt hug hennar nánast allan. En í hvaða þekktu sjónvarpsþáttum sló hún í gegn 2007? Eiginmaður Emily, Sean, er leikinn af Henry Golding. Gossip Girl. 32 Myndir mánaðarins