Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 29

A Prayer Before Dawn – The Marine 6: Close Quarters Baráttan er rétt að byrja Sönn saga Bretans Billys Moore sem flutti til Tælands þar sem eiturlyfjafíkn hans og afbrotahneigð leiddi til þess að hann var handtekinn og dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar á stað sem lýst hefur verið sem helvíti á Jörðu. Billy Moore var eiturlyfjafíkill og átti langan afbrotaferil að baki þegar hann flutti til Tælands árið 2005. Þar ætlaði hann að snúa við blaðinu og hóf að kenna ensku við tælenskan skóla. Allt gekk vel þar til hann kynntist mönnum úr undirheimum Tælands og leiddist á ný út í eiturlyf og afbrot. Hann var handtekinn árið 2007 með stolnar vörur og eiturlyf í fórum sínum og síðan vistaður í einu alræmdasta fangelsi Tælands þar sem menn þurfa að geta barist til að halda lífi. Og það var einmitt það sem Billy ákvað að gera ... að berjast fyrir frelsinu og gefa ekkert eftir. Punktar .................................................................. HHHHH - Empire HHHH 1/2 - Village Voice HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH - Hollyw. Reporter HHHH - Variety A Prayer Before Dawn hefur fengið mjög góða dóma, er með 7,6 í meðaleinkunn á Metacritic, 6,9 á Imdb og 7,4 á Rotten Tomatoes. l Billy Moore kemur sjálfur fram í myndinni og leikur föður sinn sem lést af völdum krabbameins áður en myndin var frumsýnd. l 116 VOD mín Aðalhl.: Joe Cole, Pornchanok Mabklang og Vithaya Pans- ringarm Leikstj.: Jean-Stéphane Sauvaire Útg.: Myndform Sannsögulegt 14. desember Joe Cole æfði líkamsrækt og hnefa- leika stanslaust í marga mánuði fyrir gerð myndarinnar og naut tilsagnar hins raunverulega Billys Moore sem veitti honum einnig greinargóðar upplýsingar um lífið innan rimlanna. l Joe Cole þykir algjörlega frábær í mynd- inni sem bardagamaðurinn Billy Moore. Aftur í baráttuna Sérsveitar- og bardagamaðurinn Jake Carter mætir hér í sjötta sinn til að fullnægja réttlætinu þegar mansalsklíka rænir ungri stúlku sem selja á í ánauð og í þetta sinn fær hann aðstoð frá tveimur félögum sínum sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna. VOD Hasar 85 mín 20. desember Þeir sem fylgjast með bandarísku fjölbragða- glímunni (WWE) kannast áreiðanlega við glímukappann Michael Gregory Mizanin sem er ávallt kallaður „The Miz“ og hefur gert það gott í sportinu á undanförnum árum. Hér fær hann til liðs við sig tvo aðra úr WWE, þau Shawn Michaels og Rebeccu Quin sem er betur þekkt undir sviðsnafni sínu, Becky Lynch. Saman ganga þau í það verkefni að frelsa unga stúlku úr haldi mannræningja og ganga um leið á milli bols og höfuðs á glæpasamtökum þeirra með öllum þeim mætti sem þau búa yfir í sameiningu. Mike „The Miz“ Mizanin leikur hér sem fyrr sérsveitarmanninn Jake Carter. Aðalhlutverk: Mike „The Miz“ Mizanin, Shawn Michaels og Rebecca Quin (Becky Lynch) Leikstjórn James Nunn Útgefandi: Sena Gleðileg jól Myndir mánaðarins 29