Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 27

A Royal Christmas Ball – Defending Santa – A Husband for Christmas Stærsta jólagjöfin Þegar Charles, sem er kominn af konungsfjölskyldu Baltamíu og er samkvæmt hefðinni kon- ungur ríkisins, ákveður að leita uppi gömlu skólaástina sína bíður hans óvænt uppgötvun. A Royal Christmas Ball er enn ein jólamyndin sem leikstjórinn David DeCoteau gerir fyrir Hallmark- sjónvarpsstöðina ásamt söguhöfundunum Jeffrey Schenck og Peter Sullivan. VOD Jól / Rómantík 87 mín 13. desember Í þetta sinn kynnumst við piparsveininum Charles sem þarf að mæta á hið árlega konunglega jóla- ball Baltamíu en þótt Charles sé konungur þess lands hefur hann samt engin raunveruleg völd. Þar sem Charles er ókvæntur þarf hann að finna sér förunaut á ballið og dettur þá í hug að hafa uppi á skólaástinni sinni sem hann hefur ekki séð í fjölda ára. Hún heitir Allison og í ljós kemur að eftir að leiðir þeirra Charles skildu hafði hún aldrei gift sig en eignast dóttur sem hún hefur alið upp ein. Fljótlega fer Charles að gruna að hann sé í raun faðirinn og hver veit nema það reynist rétt ... Tara Reid, Ingo Rademacher og Haley Pullos leika aðalhlutverkin í A Royal Christmas Ball. Aðalhlutverk: Tara Reid, Ingo Rademacher, Haley Pullos, Mira Furlan og Mykel S. Jenkins Leikstjórn David DeCoteau Útgefandi: Sena Trúir þú á jólasveininn? Þegar lögreglumaðurinn Scott finnur meðvitundarlausan mann í jólasveinabún- ingi grunar hann ekki að þegar sá meðvitundarlausi rankar við sér muni hann halda því fram að hann sé í raun hinn eini sanni jólasveinn. Getur verið að það sé satt? VOD Jól / Rómantík 85 mín 13. desember Defending Santa er létt og rómantísk jóla- mynd eftir leikstjórann Brian Skiba og hand- ritshöfundinn George Erschbamer þar sem hið gamalkunna þema um tilvist jólasveinsins er tekið fyrir. Að sjálfsögðu er um að ræða bandarísku útgáfuna, þ.e. söguna um Kris Kringle sem býr á Norðurpólnum og er rammgöldróttur þegar hann þarf á slíku að halda. Vandi sveinka er hins vegar sá að löggan telur það af og frá að hann geti verið Kris Kringle, sama hvað öllum töfrum líður, og því þarf hann að fá lögfræðiaðstoð til að losna úr haldi svo hann komist aftur heim ... Það trúa því fáir að sá gamli sé jólasveinninn í raun, en kannski getur hann sannað það. Aðalhlutverk: Dean Cain, Jud Tylor, Bill Lewis, Gary Hudson og John Savage Leikstjórn Brian Skiba Útgefandi: Sena Freistingarnar eru til að falla fyrir þeim Brooke Harris telur sig himin hafa höndum tekið þegar henni er boðin stöðuhækkun innan fyrirtækisins sem hún vinnur hjá og tvöföldun á launum. Vandamálið er að upphefðinni fylgir óvenjulegt og bindandi skilyrði sem hún á erfitt með að uppfylla. VOD Jól / Rómantík 87 mín 13. desember Skilyrðið sem forstjórinn setur er að Brooke giftist ókunnugum manni sem að öðrum kosti yrði vísað úr landi. Forstjórinn hefur hagsmuna að gæta í málinu og þótt Brooke lítist ekkert á þetta í byrjun skiptir hún um skoðun þegar hún hittir manninn, Roger, og kemst að því að hann er hinn vænsti náungi. Til að fléttan gangi upp þurfa þau líka að búa saman og svo fer að þau ganga í hjónaband. Um leið líður að jólum og eftir því sem þau Roger og Brooke eyða meiri tíma saman við undirbúninginn fer samband þeirra að þróast nákvæmlega í þá átt sem forstjórinn vildi! Ricco Ross og Vivica Fox leika „hjónin“ Roger og Brooke í A Husband for Christmas. Aðalhlutverk: Vivica A. Fox, Ricco Ross, Eric Roberts, Jackée Harry og Dominique Swain Leikstjórn David DeCoteau Útgefandi: Sena Myndir mánaðarins 27