Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 23

Hin ótrúlegu 2 Brettið upp ermarnar! Hin ótrúlega Parr-fjölskylda mætir til leiks á VOD-leigunum 10. desember, rúmum þrettán árum eftir að fyrri myndin um þau var frumsýnd, en hún er af mörgum talin ein besta Pixar- myndin til þessa. Þessi nýja mynd gefur henni ekkert eftir enda eru aðstandendur hennar þeir sömu, þ. á m. leikstjórinn Brad Bird og leikararnir sem ljá persónunum raddir sínar. Þótt þrettán ár séu liðin frá því við hittum Parr-fjölskylduna hefur tíminn í sögunni um þau lítið liðið því myndin byrjar skömmu eftir að þeirri fyrri lauk. Eftir að hafa bjargað heiminum frá glötun færist nú ró yfir fjölskyldulífið, allt þar til Helenu er boðið nýtt og mikilvægt starf sem hún getur ekki hafnað. Vandamálið er að þá verður Bob auðvitað að sjá um heimilishaldið en það er langt í frá létt verk því það inniheldur að hafa hemil á krökkunum þremur, þeim Violet, Dash og hvítvoðungnum Jack- Jack sem er stórhættulegur sem fyrr því hann hefur lítið vald yfir ofurkröftum sínum og má alls ekki borða kökur. En að sjálf- sögðu gerast síðan atburðir sem kalla á að Parr-fjölskyldan bretti enn á ný upp ermarnar og bjargi mannkyninu frá tortímingu ... Hin ótrúlegu 2 Teiknimynd VOD 118 mín Myndin er að sjálfsögðu vandlega talsett á íslensku en þau sem tala fyrir helstu persónurnar í ensku útgáfunni eru Craig T. Nelson, Holly Hunter, Sophia Bush, Samuel L. Jackson, Catherine Keener, Jonathan Banks, Brad Bird, Bob Odenkirk, Isabella Rossellini og John Ratzenberger Leikstjórn: Brad Bird Útgefandi: Síminn og Vodafone 10. desember Myndir mánaðarins 23