Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 22

Crazy Rich Asians Ástin er eitt – fjölskyldan er allt annað! Þau Rachel, sem er hagfræðiprófessor í New York, og Nick, sem stundar viðskipti í borginni, hafa verið saman í rúmlega ár og eru ástfangnari en nokkurn tíma fyrr. Nick ákveður því að bjóða Rachel til Singapúr að hitta fjölskyldu sína, en sú fjölskylda á sannarlega eftir að koma henni á óvart. Crazy Rich Asians er byggð á samnefndri metsölu- bók Kevins Kwan sem kom út árið 2013 og þykir allt í senn, fyndin, rómantísk og flugbeitt ádeila á lífsstíl þeirra sem vita ekki aura sinna tal og telja sér alla vegi færa á peningunum einum saman. Það sem Rachel veit ekki um Nick er að hann er kominn af flugríku fólki og hefur um árabil verið eftirsóttasti piparsveinn landsins. Þegar við bæt- ist að móðir hans er síður en svo sátt við val hans á kvonfangi og ákveður strax að reyna allt til að hrekja Rachel á brott þarf Rachel að ákveða hvort hún eigi að hrökkva eða stökkva ... Crazy Rich Asians Gamanmynd / Rómantík Rachel Wu, sem hin stórskemmtilega Constance Wu leikur, er lítt undir það búin að hitta fjölskyldu unnusta síns, síst af öllu móður hans sem á eftir að láta reyna á hana. En Rachel er ekkert blávatn. 100 VOD mín Aðalhlutverk: Constance Wu, Henry Golding, Michelle Yeoh, Gemma Chan, Awkwafina, Ken Jeong, Jimmy O. Yang og Chris Pang Leikstjórn: Jon M. Chu Útgefandi: Síminn og Vodafone 10. desember Punktar .................................................... HHHHH - Time Out HHHH 1/2 - Slate HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH 1/2 - N.Y. Post HHHH - L.A. Times HHHH - Guardian HHHH - IndieWire HHHH - Empire HHH H - The Observer HHHH - Rolling Stone HHHH - Time HHH H - Film Threat HHHH - The Wrap HHHH - IGN HHH H - Hollyw. Reporter Crazy Rich Asians hefur eins og sést hlotið toppdóma gagnrýnenda og er af mögum talin besta rómantíska kómedía ársins enda sló hún hressilega í gegn í kvikmyndahúsum beggja vegna Atlantshafsins. l Eftir rúmlega eins árs kynni vill Nick að Rachel komi með sér til Singapúr að hitta fjölskyldu sína, en það jafngildir nánast bónorði. Veistu svarið? Þau Constance Wu og Henry Golding þykja frábær í aðalhlutverkum þessarar myndar sem parið Rachel og Nick, en svo skemmtilega vill til að Henry leikur einnig eitt af aðalhlutverkunum í annarri vinsælli mynd sem kemur út í desember. Hvaða mynd? Við fyrstu kynni virðist fara vel á með móður Nicks, Eleanor, og Rachel en fljótlega kemur í ljós að Eleanor ætlar sér að hrekja hana á brott. A Simple Favour. 22 Myndir mánaðarins