Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 20

Beatriz at Dinner – Símon Stál í stál Beatriz er bandarískur innflytjandi frá Mexíkó sem vinnur við nudd og heilun. Kvöld eitt, eftir að bíllinn hennar bilar, er henni boðið í kvöldverð hjá einum af kúnnum sínum þar sem einn af gestunum er fjármála- og við- skiptamógúll að nafni Doug, en hann ber einmitt ábyrgð á því að fólk í fyrr- verandi heimabæ Beatrizar hefur þurft að þjást. Og neistar byrja að fljúga! Þau Beatriz og Doug gætu ekki verið ólíkari að upplagi og með ólíkari skoðanir á hlutunum. Á meðan Beatriz vill umfram allt reyna að gera veröldina að betri stað fyrir komandi kynslóðir er Doug alveg nákvæmlega sama um allt og alla, svo framarlega sem hann græðir sjálfur og getur gert það sem hann vill. Kvöldverð- urinn snýst því upp í ansi skrautleg skoðanaskipti þar sem bitið er á báða bóga ... Punktar .................................................................. HHHHH - L.A. Times HHHH - Time Out HHHH - Screen International HHH 1/2 - RogerEbert.com HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - E. Weekly Beatriz at Dinner var valin ein af tíu bestu óháðu kvikmyndum ársins 2017 af samtökum bandarískra gagn- rýnenda og var handrit hennar, sem er eftir Mike White (Orange County, The Good Girl, School of Rock, Brad’s Status), tilnefnt til óháðu Spirit- verðlaunanna sem besta handrit ársins svo og Salma Hayek fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna. l 83 VOD mín Aðalhl.: Salma Hayek, John Lithgow, Connie Britton og Chloë Sevigny Leikstj.: Miguel Arteta Útgef.: Myndform Grín / Satíra 7. desember Leikstjóri myndarinnar, Miguel Asteta, á margar góðar myndir að baki, þ. á m. The Good Girl sem Mike White skrifaði handritið að. l Salma Hayek leikur nuddarann Beatriz sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Símon Sjö þættir um fjallhressa kanínustrákinn Símon Teiknimyndaþættirnir um Símon eru byggðir á metsölubókum Stephanie Blake sem hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál og hafa þessir þættir notið mikilla vinsælda á sjónvarpsstöðvum víða um heim, þ. á m. á RÚV. Símon er eldhress kanínustrákur sem lætur sér fátt óviðkomandi og er óhræddur við að prófa og læra eitthvað nýtt. Um leið á hann það til að gera mistök en þótt hann sé svona lítill er hann með stórt hjarta og er ávallt fljótur að sjá muninn á röngu og réttu. VOD 40 mín Teiknimyndir um Símon kanínustrák og uppátæki hans á hverjum degi Útgefandi: Myndform Barnaefni 20 Myndir mánaðarins 7. desember