Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 19

A Christmas Cruise – Coming Home for Christmas Siglt inn í jólin Þegar vinkona Pam Stevenson býður henni í jólasiglingu með skemmtiferðaskipi ákveður hún að nota fríið til að fá hugmyndir að sinni næstu bók. Hana grunar ekki að þessi saga eigi eftir að skrifa sig sjálf! A Christmas Cruise er eftir leikstjórann David DeCoteau sem gerði einnig myndina A Husband For Christmas (sjá bls. 27) en hún skartar einnig Vivicu A. Fox í aðalhlutverkinu og eru handrits- höfundar einnig þeir sömu. VOD Jól / Rómantík 87 mín 6. desember Hér leikur Vivica rithöfundinn Pam Stevenson sem hefur átt í vandræðum með að fá hugmynd að sinni næstu bók og sér því gott tækifæri í því þegar vinkona hennar Becky býður henni með sér í siglingu yfir jólahátíðina. Staðráðin í að ein- beita sér að sögusköpuninni lendir Pam þó fljót- lega í vanda þegar skipstjórinn heillar hana upp úr skónum og úr verður óvænt ástarævintýri ... Vivica A. Fox leikur Pam Stevenson í jólamyndinni A Christmas Cruise. Aðalhlutverk: Vivica A. Fox, Kristoff St. John, Jessica Morris, Rib Hillis og Jason Cook Leikstjórn David DeCoteau Útgefandi: Sena Síðasta jólaveislan Lizzie Richfield lendir á milli steins og sleggju þegar henni er falin umsjón með Ashford-setrinu sem sett hefur verið í sölu, þvert á vilja ættmóðurinnar Pippi. Til að létta lund allra ákveður Lizzie að skipuleggja jólaveislu fyrir fjölskylduna. Coming Home for Christmas er létt og róman- tísk jólamynd frá Hallmark sem ætti að geta kveikt undir jólastemningunni hjá mörgum. VOD Jól / Rómantík 90 mín 6. desember Michael B. Jordan hefur enn á ný slegið í gegn, nú í framhaldsmyndinni Creed II sem gefur fyrirrennaranum ekkert eftir í gæðum. Hér er kappinn umvafinn aðdáendum og gefur sjálfur á báða bóga í Los Angeles 20. nóvember. Það sem Lizzie veit ekki þegar hún tekur að sér umsjón hins verðmæta Ashford-seturs er að þeir sem tilheyra fjölskyldunni eru eins ólíkir og hugsast getur. Fyrir utan móðurina Pippi þarf Lizzie að eiga við syni hennar tvo, annars vegar glaumgosann Kip og hins vegar viðskiptamanninn Robert sem svo skemmti- lega vill til að eru báðir á lausu. Málin vandast svo enn frekar þegar bæði Kip og Robert fara að gera hosur sínar grænar fyrir Lizzie ... Neal Bledsoe og Danica McKellar í hlut- verkum sínum í Coming Home for Christmas. Aðalhlutverk: Danica McKellar, Neal Bledsoe, Andrew Francis, Lindsay Maxwell og Paula Shaw Leikstjórn Mel Damski Útgefandi: Sena Stjarna Ramys Malek hefur risið hátt með mynd- inni Bohemian Rhapsody þar sem hann leikur Freddie Mercury. Sjálfur er Ramy sallarólegur yfir öllu saman og skellti sér á leik Portland Trail Blazers og New York Knicks 20. nóvember. Þarna stilla leikstjórarnir Martin Scorsese og Spike Lee sér upp fyrir ljósmyndarann á sér- stakri hátíðar- og fjáröflunarsamkomu sem haldin var til heiðurs þeim fyrrnefnda í Nútímalistasafninu í New York 19. nóvember. Myndir mánaðarins 19