Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 14

Ófærð Áður en leiðirnar opnast Ófærð er margverðlaunuð spennuþáttaröð, sem hefur notið fádæma vin- sælda alls staðar þar sem hún hefur verið sýnd. Gagnrýnendur í Bretlandi, Frakklandi, Ástralíu, Japan og víðar hafa keppst um að hlaða hana lofi og er sérstaklega til þess tekið hve hin vetrarlega íslenska umgjörð sé heill- andi, sagan spennandi og skemmtileg og hvað þættirnir séu vel leiknir. Um það leyti sem Norræna leggst að bryggju um hávetur, rekur sundurskorið lík að landi. Á sama tíma skellur á óveður og allar leiðir úr og í bæinn lokast vegna fannfergis. Andri (Ólafur Darri Ólafsson) og félagar hans í lögreglunni keppast við að reyna að leysa málið áður en veðrinu slotar og vegir opnast að nýju, því þeir vita sem er að þangað til kemst enginn burt, ekki einu sinni morðinginn ... Punktar .................................................................. Þessi veglegi DVD-pakki sem kemur út 6. desember inniheldur að auki kynningarþátt um þáttaröðina (Bakvið tjöldin) og stiklu. l Skjátextar sem fylgja eru á ensku, pólsku og íslensku. l Fyrir utan að hljóta afbragsdóma gagnrýn- enda hefur Ófærð verið margverðlaunuð og hlaut m.a. PRIX Europa-verðlaunin sem besta sjónvarpsþáttaröð ársins í Evrópu 2016. l Leikstjórar Ófærðar voru fjórir, Baltasar Kor- mákur, Óskar J. Axelsson, Baldvin Zophonías- son og Börkur Sigþórsson. l 520 DVD mín Aðalhl.: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson Leikstjórn: Sjá punkta Útgef.: Sena Sakamál 6. desember Dwayne Johnson var staddur í London 24. nóvember þar sem verið var að taka upp atriði í myndina Hobbs and Shaw en hún er svokallað „spin-off“ frá Fast & Furious-myndunum. 14 Myndir mánaðarins Þess má geta að nú er verið að leggja loka- hönd á aðra þáttaröðina, Ófærð 2, en sýningar á henni hefjast á RÚV 26. desember nk. l Það er hefð fyrir því að elda mat á götum úti um þakkargjörðarhátíðina í Bandaríkjunum og gefa þeim heimilislausu að borða. Kevin Hart lét sitt ekki eftir liggja í Los Angeles 21. nóvember Natalie Portman skartaði þessum glæsilega kjól þar sem hún sótti viðhafnarkvöldverð í boði bandarísku kvikmyndastofnunarinnar 5. nóvemer ásamt fjölmörgum kollegum.