Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 10

Kona fer í stríð Stríð eru af öllum gerðum Halla (Halldóra Geirharðsdóttir) er kór­stjóri á fimm­tugs­aldri sem ákveður að lýsa yfir sínu eigin stríði gegn allri mengandi stóriðju í land­inu. Hún ger­ist skemmd­ar­verkamaður og er til­ bú­in að fórna öllu fyr­ir móður jörð og há­lendi Íslands, allt þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Að bjarga einu barni er að bjarga heiminum. En er það nóg? Kona fer í stríð er önnur bíómynd Benedikts Erlingssonar sem leik- stjóra en sú fyrri var myndin Hross í oss sem sló í gegn haustið 2013, hlaut síðan sex Edduverðlaun af fjórtán tilnefningum, þ. á m. sem besta mynd ársins, auk toppdóma gagnrýnenda og óteljandi verðlauna á alþjóðlegum hátíðum. Kona fer í stríð kemur út á DVD og á VOD-leigunum 6. desember og það er full ástæða til að hvetja unnendur íslenskrar kvikmyndagerðar að missa ekki af henni ... Halldóra Geirharðsdóttir leikur kórstjórann Höllu sem ákveður að segja stóriðjunni stríð á hendur fyrir hönd náttúrunnar og leggja allt sitt í baráttuna, íslenskum yfirvöldum til lítillar skemmtunar. Kona fer í stríð Punktar .................................................... Hasar DVD HHHHH - Variety HHHH 1/2 - The Globe and Mail HHHH - Hollywood Reporter HHHH - Screen Intern. 96 VOD mín Aðalhlutverk: Hall­dóra Geir­h­arðsdótt­ir, Davíð Þór Jóns­son, Magnús Tryggva­son Eli­assen, Ómar Guðjóns­son og Jó­hann Sigurðsson Handrit: Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Útgefandi: Sena 6. desember Kona fer í stríð hefur gert það gott á erlendum kvikmyndahátíðum á árinu og hlotið fjölda verðlauna, nú síðast LUX-verðlaunin (kvik- myndaverðlaun Evrópuþingsins) þann 14. nóvember, en þau eru veitt myndum sem skarað hafa fram úr og tengjast mikilvægum umræðum um málefni líðandi stundar, eins og t.d. náttúruvernd. l Myndin hlaut enn fremur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í byrjun nóvember en í rökstuðningi verðlaunanefndarinnar sagði m.a. að Kona fer í stríð sé „frábær kvikmynd og leiftrandi skemmti- leg í meðferð sinni á hápólitísku viðfangsefni, svo og á einkalífi 48 ára gamallar konu sem er hin óvænta hasarhetja myndarinnar. “ l l Veistu svarið? Eins og alþjóð veit á Benedikt Erlingsson, leikstjóri Kona fer í stríð, einnig langan leiklistarferil að baki á sviði og í ýmsum myndum auk þess að gera það gott í grínþáttunum Fóstbræður. En hver var fyrsta bíómyndin sem hann lék í og var frumsýnd 1995? Í miðri baráttunni fyrir náttúruna gengur ættleiðing Höllu á ungri stúlku frá Úkraínu í gegn og á koma hennar eftir að hafa mikil áhrif á allar þær ákvarðanir sem Halla þarf að taka um framtíðina. Tár úr steini. 10 Myndir mánaðarins Kona fer í stríð er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2019.