Myndir mánaðarins MM Desember 2018 Bíóhluti | Page 4

Myndir mánaðarins Gleðileg jól Desember er runninn upp enn eina ferðina með tilheyrandi hátíðahaldi sem verður vonandi ánægjulegt og gefandi fyrir alla Íslendinga nær og fjær. Víst er að kvikmyndaáhugafólk fær margt gott í skóinn í þessum síðasta mánuði ársins enda eru vægast sagt mjög góðar myndir á dagskrá kvikmyndahúsanna þótt þær séu ekki margar að þessu sinni. Eflaust bíða flestir eftir nýjustu Mary Poppins-myndinni sem prýðir forsíðu blaðsins að þessu sinni, en aðrar myndir mánaðarins eru líka spennandi hver á sinn hátt og má sjá heiti þeirra í upptalningunni hér fyrir neðan. Athugið að næsta blað, janúarblaðið, sem er jafnframt tölublað númer 300 af Myndum mánaðarins, kemur út á milli jóla og nýárs. Desemberdagskrá bíóhúsanna: 7. des. 14. des. 19. des. 26. des. 26. des. 26. des. 26. des. The Sister’s Brothers Mortal Engines Aquaman Mary Poppins Returns Bumblebee Spider-Man: Into the Spider-Verse Second Act Bls. 18 Bls. 20 Bls. 22 Bls. 24 Bls. 26 Bls. 28 Bls. 30 Sjáumst í bíó! Kíkið einnig á DVD- og VOD-útgáfuna sem sjá má hinum megin í blaðinu ásamt kynningu á nýjum tölvuleik og PlayStation-Classic- leikjatölvunni sem inniheldur m.a. 20 sígilda leiki. Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Finndu þá jólagjöfina og taktu þátt í leiknum! Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna litla jóla- gjöf sem einhver gleymdi inni á einni síðunni hér bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi: Ef þú finnur jólagjöfina og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem jólagjöfin er. Mundu að hafa fullt heimilisfang með svarinu. Frestur til þátttöku er til og með 17. desember. Valið verður af handahófi úr réttum lausnum 18. desember og verða nöfn vinningshafa birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði. Vinningshafar í síðasta leik, finndu loftbelginn: Þorsteinn Gísli Jónsson, Skinnastöðum, 671 Kópaskeri Víkingur Kári Sigfússon, Hraunbæ 40, 110 Reykjavík Valgerður Ásrún Sigurðardóttir, Hraunbæ 130, 110 Reykjavík Elín Björk Magnúsdóttir, Hraunbæ 136, 110 Reykjavík Katrín Þórðardóttir, Klukkuvöllum 42, 221 Hafnarfirði Takk fyrir þátttökuna! MYNDIR MÁNAÐARINS 299. tbl. desember 2018 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected] Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 20.000 eintök 4 Myndir mánaðarins FRUMSÝND 26. DESEMBER