Myndir mánaðarins MM Desember 2018 Bíóhluti | Page 28

Spider-Man: Into the Spider-Verse Fleiri en einn ganga með grímuna! Teiknimyndin Spider-Man: Into the Spider-Verse verður frum- sýnd á annan dag jóla en hér er um að ræða hliðarævintýri frá hinum venjulegu Spider-Man-myndum þar sem aðalsögu- hetjan er Miles Morales sem telur sig hinn eina og sanna köngulóarmann. Í þeim efnum hefur hann rangt fyrir sér því hann er bara einn af nokkrum sem geta kallað sig því nafni. Að því kemst Miles þegar hann kynnist hinni framandi Spider-Man- veröld þar sem köngulóarmenn, köngulóarkonur og köngulóardýr hafast við og eru öll gædd sömu ofurhæfileikunum. Þeirra á meðal er Peter Parker sem tekur Miles í kennslustund í sveiflutækninni áður en hann hittir allar hinar köngulóarútgáfunar, þar á meðal Gwen Stacy, svarta köngulóarmanninn og Spider-Ham, sem er í raun svín. Úr þessu öllu verður heljarinnar ævintýri, spennandi og mjög fyndið, þar sem hersingin þarf að takast á við glæpakónginn þykka, Wilson Fisk, sem síðast lét á sér kræla í nýjasta Spider-Man-tölvuleiknum. Myndin verður sýnd bæði með íslensku og ensku tali en á meðal þeirra sem tala fyrir persónurnar í ensku útgáfunni eru þau Shameik Moore, Hailee Steinfeld, Liev Schreiber, Nicolas Cage, Mahershala Ali, Jake Johnson, Lily Tomlin, Brian Tyree Henry og Kimiko Glenn. Spider-Man: Into the Spider-Verse Teiknimynd 120 mín Íslensk talsetning: Hafsteinn Níelsson, Rúnar Freyr Gíslason, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Hilmar Guðjónsson, Davíð Guðbrandsson, Steinn Ármann Magnússon, Valgerður Guðna- dóttir, Björgvin Franz Gíslason, Ævar Þór Benediktsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Þýðing og leikstjórn: Kristinn Sigurpáll Sturluson Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóið Álfabakka og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 26. desember 28 Myndir mánaðarins