Myndir mánaðarins MM Apríl 2019 Bíóhluti | Page 4

Myndir mánaðarins Gleðilega páska Páskadag ber í þetta sinn upp á sunnudaginn 21. apríl og er óvenju seint á ferðinni. En það gerir auðvitað ekkert til, enda páskar engu að síður með tilheyrandi hátíðarhaldi og vonandi með sem lengstu páskafríi fyrir sem flesta. Kvikmyndahúsin bjóða að venju upp á úrval mynda úr ýmsum áttum og má þar fyrst telja forsíðumynd- irnar tvær, Avengers: Endgame sem margir bíða mjög spenntir eftir og svo gamanmyndina Ömurleg brúðkaup 2 sem er framhald metaðsóknarmyndarinnar frá árinu 2014. Einnig verður boðið upp á ofurhetjugrínið Shazam!, tvo trylla, Pet Sematary og The Curse of La Llorona, tvær teiknimyndir, Undragarðinn og hinn týnda Hlekk, og svo rómantísku myndina Five Feet Apart. Herra Hlekkur Apríldagskrá bíóhúsanna: 5. apríl 5. apríl 12. apríl 12. apríl 17. apríl 17. apríl 17. apríl 24. apríl Shazam! Pet Sematary Ömurleg brúðkaup 2 Undragarðurinn Týndur Hlekkur Five Feet Apart The Curse of La Llorona Avengers: Endgame Bls. 18 Bls. 20 Bls. 22 Bls. 24 Bls. 25 Bls. 26 Bls. 28 Bls. 30 Kíkið svo einnig á DVD- BluRay- og VOD-útgáfuna hinum megin í blaðinu, en þar má finna margar áhugaverðar gæðamyndir. Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Finndu þá páskaungann og taktu þátt í leiknum! Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulítinn páskaunga sem villst hefur inn á eina síðuna hér bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi: Ef þú finnur ungann og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem unginn er. Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu. FRÁ SEM FÆRÐU OKKUR Frestur til þátttöku er til og með 21. apríl. Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt í næsta tölublaði sem kemur út í lok apríl. Vinningshafar í síðasta leik, finndu sólina: Lára Þorvaldsdóttir, Ásatúni 8, 600 Akureyri Sveinn Logi Pálsson, Klukkuvöllum 42, 221 Hafnarfirði Andri Sævar Arnarsson, Elliðavöllum 9, 230 Keflavík Guðný Margrét Ólafsdóttir, Holtagerði 78, 200 Kópavogi Tómas Dagur Atlason, Holtsgötu 1, 101 Reykjavík Takk fyrir þátttökuna! MYNDIR MÁNAÐARINS 303. tbl. apríl 2019 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected] Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 20.000 eintök 4 Myndir mánaðarins FRUMSÝND 17. APRÍL