Myndir mánaðarins MM Apríl 2019 Bíóhluti | Page 26

Five Feet Apart Eitt skref í einu Þau Will og Stella eru ungt fólk sem þjáist af hinum arfgenga sjúkdómi Cystic Fibrosis sem á íslensku hefur verið kallaður slímseigjusjúkdómur og er enn sem komið er ólæknandi. Þau kynnast á sjúkrahúsi þar sem þau sækja hin ýmsu meðferðar- úrræði og á milli þeirra kvikna rómantískar tilfinningar. Five Feet Apart er raunsönn og hrífandi, rómantísk ástarsaga þar sem tvær af framtíðarstjörnum Bandaríkjanna, þau Cole Sprouse og Haley Lu Richardson, fara á kostum í vandasömum hlutverkum. Um leið og þau Will og Stella hittast og verða ástfangin komast þau ekki hjá því að horfa til vandamálanna við sambandið sem eru af margvíslegum toga, þ. á m. það að þeim er bannað að koma nær hvort öðru en sem nemur fimm fetum. Það setur að sjálfsögðu stórt strik í reikninginn auk þess sem ýmislegt annað við þennan sjúkdóm, sem á árum áður dró fólk yfirleitt til dauða, skerðir allar framtíðarhorfur þeirra. En sem fyrr lætur ástin ekki að sér hæða ... Five Feet Apart Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Cole Sprouse og Haley Lu Richardson og hafa þau hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Rómantík / Drama 116 mín Aðalhlutverk: Haley Lu Richardson, Cole Sprouse, Claire Forlani, Moises Arias, Parminder Nagra og Kimberly Hebert Gregory Leikstjórn: Justin Baldoni Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri Til að tryggja að í sögunni væri rétt farið með allt sem viðkemur slímseigjusjúkdómnum unnu aðstandendur hennar og allir leikar- arnir náið með bandarísku samtökunum Claire’s Place sem styðja við bak sjúklinga sem þjást af þessum arfgenga sjúkdómi. l Frumsýnd 17. apríl Veistu svarið? Haley Lu Richardson skapaði sér upphaflega nafn sem dansari og danshöfundur áður en hún hellti sér út í leiklistina fyrir nokkrum árum. Hún lék m.a. eina af stúlkunum þremur sem Kevin Wendell Crumb tók í gíslingu í einni af myndum ársins 2016. Hvaða mynd? Myndir mánaðarins Cole Sprouse hóf leiklistarferil sinn aðeins ársgamall þegar hann og eineggja tvíburabróðir hans, Dylan, skiptu með sér hlutverki Patricks Kelly í sjónvarpsþáttunum Grace Under Fire næstu fimm ár, þ.e. frá 1993 til 1998. Þeir léku síðar Julian, son Adams Sandlers í Big Daddy, og vafalaust muna svo Friends-aðdáendur eftir Cole í hlutverki Bens Gellar, sonar Ross Gellar sem David Schwimmer lék. l Myndin dregur heiti sitt af því að vegna sjúkdómsins er þeim Stellu og Will skipað að halda sig í a.m.k. fimm feta fjarlægð frá hvort öðru. Split. 26 Punktar ....................................................