Myndir mánaðarins MM Apríl 2019 Bíóhluti | Page 16
Myndasyrpa
16
Nýjasta mynd spænska kvikmyndagerðarmannsins Pedros Almodóvar,
Dolor y gloria, eða Sársauki og sigur, var frumsýnd á Spáni 22. mars og
hefur að sjálfsögðu fengið toppdóma eins og flestar myndir hans í
gegnum árin. Í aðalhlutverkum eru þau Penélope Cruz og Antonio
Banderas sem mættu að sjálfsögðu á svæðið ásamt meistaranum. Hjónin Emily Blunt og John Krasinski eru nú komin á fulla ferð við
gerð myndarinnar A Quiet Place 2, en eru þögul sem gröfin varðandi
leikaraval og söguþráð. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim á
verðlaunahátíð bandarískra handritshöfunda þar sem John var til-
nefndur fyrir handritið að fyrri myndinni en þurfti svo að lúta í lægra
haldi fyrir Bo Burnham og handriti hans að myndinni Eighth Grade.
Það gerist áreiðanlega ekki oft að þessar fimm séu staddar á sama stað
á sama tíma og því síður að þær stilli sér upp saman. Það gerðist samt
á síðustu Grammy-verðlaunahátíð. Þetta eru frá vinstri Jada Pinkett
Smith, Michelle Obama, Alicia Keys, Jennifer Lopez og Lady Gaga. Kvikmyndin Tolkien í leikstjórn Domes Karukoski (Tom of Finland) er
nú svo gott sem tilbúin og verður hún forsýnd í Bretlandi í maí áður
en hún fer í almenna dreifingu. Segja þeir sem til þekkja að þarna sé
sennilega komin ein þeirra mynda sem keppa munu um a.m.k. bresku
BAFTA-verðlaunin í janúar nk. Á myndinni má sjá þau Nicholas Hoult í
hlutverki J.R.R. Tolkiens og Lily Collins sem leikur eiginkonu hans, Edith.
Tökum á myndinni The Kitchen í New York er nú lokið, en hana stendur
til að frumsýna í ágúst eða september. Myndin gerist á áttunda áratug
síðustu aldar og segir frá eiginkonum fjögurra mafíósa sem ákveða
að halda glæpastarfsemi manna sinna við á meðan þeir sitja í stein-
inum. Athygli vekur að myndin er flokkuð sem glæpa- og hasarmynd
því þær sem leika eiginkonurnar eru allar mun þekktari fyrir gamanleik.
Þetta eru þær Tiffany Haddish, Melissa McCarthy, Annabella Sciorra og
Elisabeth Moss, en leikstjóri og handritshöfundur er Andrea Berloff. Þessi tvö, leikkonan Elsie Fisher og leikstjórinn og handritshöfundurinn
Bo Burnham, hafa verið á allra vörum í Hollywood það sem af er þessu
ári enda hafa þau vart haft við að taka á móti verðlaunum og viðurkenn-
ingum fyrir myndina Eighth Grade sem Elsie leikur aðalhlutverkið í og Bo
skrifar handritið að og leikstýrir. Ykkur er óhætt að leggja nöfnin á minnið.
Myndir mánaðarins