Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 Bíóhluti | Page 26

Solo : A Star Wars Story Star Wars
Solo : A Star Wars Story
Aftur til upphafsins
Önnur hliðarsagan í Star Wars-sögunni segir frá ævintýrum Hans Solo áður en hann hitti Luke Skywalker og gekk ásamt honum til liðs við uppreisnarmenn í fyrstu myndinni , þ . e . fjórða kafla sögunnar A New Hope sem var frumsýndur 1977 .
Eins og allir sem fylgst hafa með Star Wars-sögunum var fyrsta hliðarsagan , Rogue One , frumsýnd í desember 2016 . Sú mynd fjallaði um hvernig uppreisnarmenn komust yfir teikningarnar sem síðar áttu eftir að gera þeim kleift að finna veika blettinn á hinum risastóra vígahnetti Dauðastjörnunni . Nokkuð ljóst er af stiklum nýju myndarinnar , Solo , að hún gerist ekki bara fyrir atburðina í A New Hope heldur hefst hún einnig fyrir atburðarásina í Rogue One . Ef hún síðan fylgir línunni sem var gefin í Rogue One þá teygir Solo sig yfir í tíma hennar og síðan allt þar til þeir Han Solo og Luke Skywalker hittast í fyrsta sinn . Þetta skilja allir sem eru vel inni í tímaröð seríunnar . Athugið að þetta eru auðvitað bara getgátur þess sem þetta skrifar því þótt ýmislegt hafi verið gefið í skyn í kynningarefni Solo er meginatburðarásin enn óskýr þegar þetta er skrifað enda eru allir aðstandendur myndarinnar bundnir þagnareiði og mega ekkert segja opinberlega um hvað gerist í myndinni , hvað þá endinn . Hann mun því ekki liggja fyrir fyrr en í lok maí en á það má benda að myndin verður frumsýnd hér á landi tveimur dögum fyrr en í Bandaríkjunum . Þeir sem skella sér á hana þá verða því með þeim fyrstu í heiminum til að vita hið sanna ...

Solo : A Star Wars Story Star Wars

135 mín
Aðalhlutverk : Alden Ehrenreich , Emilia Clarke , Donald Glover , Paul Bettany , Woody Harrelson , Phoebe Waller-Bridge , Thandie Newton , Jon Favreau , Joonas Suotamo og Warwick Davis Leikstjórn : Ron Howard Bíó : Sambíóin Álfabakka , Kringlunni , Egilshöll , Keflavík og Akureyri , Smárabíó , Laugarásbíó , Ísafjarðarbíó , Selfossbíó , Eyjabíó , Króksbíó , Skjaldborgarbíó og Bíóhöllin Akranesi
26 Myndir mánaðarins
Frumsýnd 23 . maí
Við hér á Myndum mánaðarins spáum því að Solo muni enda á því að þeir Han Solo og Luke Skywalker hittast í fyrsta skipti .
Veistu svarið ? Woody Harrelson leikur hér Tobias Beckett sem fær Han Solo í lið með sér og á eftir að verða nokkurs konar lærifaðir hans . Um leið er þetta í annað sinn sem Ron Howard leikstýrir Woody í bíómynd , en það gerði hann einnig árið 1999 . Í hvaða mynd ?
Edtv .
Hinn 29 ára gamli Alden Ehrenreich leikur Han Solo í myndinni en þess má geta að Harrison Ford var 34 ára þegar hann lék hann í A New Hope .
Punktar .................................................... l Sagan segir að Alden Ehrenreich sem leikur Han Solo hafi verið fyrsti leikarinn sem tekinn var inn í prufutökur af þeim þúsundum sem sóttust eftir hlutverkinu . Alden er 29 ára , fæddur 22 . nóvember 1989 . Hann hóf leikferilinn 2005 og átti að baki leik í myndum eins og Beautiful Creatures , Blue Jasmine og Running Wild áður en hann sló í gegn í hlutverki Hobies Doyle í Coen-myndinni Hail , Caesar !, en fyrir það hlutverk hlaut hann fjölmörg verðlaun og viðurkenningar . Þess má til gamans geta að þetta er í fjórða sinn sem ein af aðalpersónunum í nýjustu Star Wars-myndinni er leikin af leikara sem er nýbúinn að leika í Coen-mynd . Hinir fyrri eru Domhnall Gleeson , Oscar Isaac og Adam Driver . Tilviljun ? Já , sennilega .
l Í Solo koma auðvitað fram nýjar persónur sem ekki hafa áður komið við sögu í Star Wars-seríunni en einnig einhverjar gamlar . Þar ber helst að nefna Lando Calrissian sem Billy Dee Williams lék í myndunum The Empire Strikes Back og The Return of the Jedi . Hann er hér leikinn af Donald Glover ( nei , hann er ekki sonur leikarans Dannys Glover ). Þess má geta að í myndinni hittast þeir Han Solo og Chewbacca einnig í fyrsta sinn og við sjáum hvað það er sem gerir þá upp frá því að langtímavinum og samstarfsfélögum .