Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 Bíóhluti | Page 14
Væntanlegt í júní
Klukk, þú ert’ann! Bara stiklan er meistaraverk
Einu sinni fyrir langa löngu, fyrir tíma tölvuleikja, þráðlausra
síma og barnaefnis í sjónvarpi, léku krakkar sér saman úti á
kvöldin. Þá fóru þau stundum í vinsælan eltingar- og feluleik
sem var yfirleitt kallaður „síðasta“, en líka stundum „klukk“.
Þetta var einfaldur leikur sem snerist um að einhver í hópnum
„var’ann“ og þurfti að elta uppi aðra í hópnum og „klukka“ þá
til að losna við að ver’ann en í klukki fólst að ná að snerta
viðkomandi. Sá sem var klukkaður breyttist þá í að ver’ann og
þurfti að elta einhvern félaga sinn uppi til að klukka hann ... og
svo koll af kolli þangað til tíminn leysti leikinn sjálfkrafa upp. Það hefur ekki allt kvikmyndaáhugafólk áhuga á að skoða
stiklur væntanlegra mynda og sumir meira að segja forðast að
sjá þær á þeim grunni að þær skemmi fyrir upplifuninni ef þeir
skyldu síðan sjá myndina. Þetta er auðvitað alveg rétt í mörg-
um tilfellum enda flestir sammála um að langskemmtilegast
sé að láta góða sögu í góðri mynd koma sér á óvart. En svo eru
aðrir sem kæra sig kollótta um þetta og hafa gaman af stiklum,
líta jafnvel á þær sem sjálfstæð kvikmyndaverk og hafa auð-
vitað rétt fyrir sér hvað það varðar. Sá sem þetta skrifar er í
síðarnefnda hópnum og telur, eftir að hafa séð stikluna úr
Sicario: Day of the Soldado, að þar sé komin ein af stiklum
ársins. Myndin er eins og heitið gefur til kynna framhald af
mynd Denis Villeneuve frá árinu 2015 og er óhætt að segja að
atburðarásin í henni komi á óvart. Um leið og við getum
tæplega mælt með að fyrri hópurinn sem við nefndum hér að
ofan sjái þessa stiklu hvetjum við síðarnefnda hópinn til að
láta hana ekki fram hjá sér fara, enda frábær stikla ein og sér.
Þessi merkilegi leikur er aðalatriðið í gamanmyndinni Tag sem
kemur í bíó í júní og fjallar um nokkra æskuvini sem léku sér í
„síðasta“ þegar þeir voru ungir. Ólíkt öðrum ákváðu þau hins
vegar að hætta ekki í leiknum og eru því enn í honum, komin
hátt á fertugs- og jafnvel fimmtugsaldur. Myndin lofar ákaflega
góðu eins og sjá má í mjög fjörugum stiklunum og gæti hæg-
lega orðið einn af gamansmellum ársins. Tékkið á henni.
Benicio Del Toro og Josh Brolin í Day of the Soldado.
14
Myndir mánaðarins