Myndir mánaðarins Mars 2018 tbl. 290 Bíóhluti | Page 20
Tomb Raider
Að duga eða drepast
Sjö árum eftir að faðir Löru Croft, Richard Croft lávarður, hvarf
sporlaust í einni af ævintýraferðum sínum ákveður hún að
segja upp sendlastarfinu í London, axla sín skinn og halda til
eyjunnar dularfullu þar sem síðast spurðist til föður hennar.
Tölvuleikjapersónan Lara Croft snýr aftur á hvíta tjaldið þann 16.
mars eftir fimmtán ára hlé og er í þetta sinn leikin af sænsku leik-
konunni og Óskarsverðlaunahafanum Aliciu Vikander. Um er að
ræða söguna allt frá upphafi, eða „reboot“ eins og það er kallað á
útlensku og er söguþráðurinn sóttur í næstnýjasta tölvuleik serí-
unnar sem kom út 2013 og hlaut mjög góða dóma leikjaunnenda.
Í byrjun myndarinnar kynnumst við Löru og högum hennar allt frá
því að hún er lítil stúlka og þar til hún er fjórtán ára, en það er þá
sem hún sér föður sinn í síðasta sinn. Árin líða og Lara þarf að læra
að standa á eigin fótum í London þar sem hún menntar sig og
tekst með naumindum að hafa í sig og á sem hjólasendill. Allan
tímann hefur hún aldrei gefið upp vonina um að finna föður sinn á
ný, eða a.m.k. komast að því hvað um hann varð, og að því kemur,
sjö árum eftir að hann kvaddi hana, að hún heldur af stað út í heim
að leita hans, þvert á ráðleggingar allra sem hún þekkir ...
Tomb Raider
Ævintýri
Aðalhlutverk: Alicia Vikander, Dominic West, Walton Goggins, Nick
Frost, Daniel Wu, Kristin Scott Thomas, Hannah John-Kamen, Antonio
Aakeel og Emily Carey Leikstjórn: Roar Uthaug Bíó: Sambíóin Álfa-
bakka, Egilshöll, Kringlunni, Akureyri og Keflavík, Smárabíó, Selfossbíó,
Ísafjarðarbíó, Bíóhöllin Akranesi, Eyjabíó, Króksbíó og Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 16. mars
Alicia Vikander leikur Löru Croft sem í leit að föður sínum heldur í
stórhættulega ævintýraferð til eyju nokkurrar úti fyrir strönd Japans.
Punktar ....................................................
Leikstjóri myndarinnar er hinn norski Roar Uthaug sem sendi
síðast frá sér metaðsóknarmyndina Bølgen.
l
Takið eftir leikkonunni ungu, Emily Carey, sem leikur Löru Croft
þegar hún er fjórtán ára, en þetta
er sama leikkonan og lék Diönu
Prince unga í Wonder Woman.
l
Þetta er í annað sinn sem
Dominic West leikur föður pers-
ónunnar sem Alicia Vikander leik-
ur en þau léku einnig feðgin í
Testament of Youth árið 2014.
l
Eins og gefur að skilja var talsverð
samkeppni um að hreppa hlut-
verk Löru Croft og fyrir utan Aliciu
fóru þar fremstar í flokki þær
Daisy Ridley, Emilia Clarke, Saoirse
Ronan og Cara Delevingne. Þess
ber þó að geta að Daisy dró sig út
þegar ljóst varð að hún myndi
leika í næstu Star Wars-mynd.
l
Eins og búast mátti við inniheldur Tomb Raider mörg áhættuatriði
sem Alicia Vikander sá sjálf um að framkvæma enda í toppþjálfun.
Veistu svarið?
Eins og kemur fram í kynningunni hér á síðunni er
sagan í myndinni sótt í tölvuleikinn sem kom út árið
2013 og var nýtt upphaf sögunnar um Löru Croft.
En hvað hét framhaldsleikurinn sem kom út 2015?
Tomb Raider var tekin upp í Lond-
on og í óbyggðum Suður-Afríku.
l
Rise of the Tomb Raider.
20
Myndir mánaðarins