Myndir mánaðarins Júní 2018 tbl. 293 Bíóhluti | Page 20

Adrift Sannsögulegt / Rómantík
Adrift
Ekki missa vonina
Nýjasta mynd Baltasars Kormáks er byggð á sannri sögu þeirra Tamiar Ashcraft og Richards Sharp sem hittust árið 1983 og féllu hvort fyrir öðru . Nokkrum mánuðum síðar , eða í október sama ár , tóku þau að sér að sigla 44 feta skútu , Hazana , frá Tahiti-eyju í Pólýnesíu til viðtakenda í San Diego , um 6.500 kílómetra leið yfir opið Kyrrahafið . Það reyndist feigðarför .
Adrift verður frumsýnd í kvikmyndahúsum um allan heim núna í júní og verður gaman að sjá hvort hún eigi eftir að gera það jafngott eða jafnvel betra en Everest fyrir þremur árum , en sú mynd er tekjuhæsta mynd íslensks leikstjóra til þessa , með tekjur upp á tæplega 204 milljónir dollara . Everest naut einnig gríðarlegra vinsælda á Íslandi og varð mest sótta mynd ársins 2015 þegar tæplega 70 þúsund manns sáu hana í bíó . Við hér á Myndum mánaðarins viljum að sjálfsögðu hvetja alla til að skella sér á Adrift sem fyrst .

Adrift Sannsögulegt / Rómantík

Aðalhlutverk : Shailene Woodley , Sam Claflin , Grace Palmer og Jeffrey Thomas Leikstjórn : Baltasar Kormákur Bíó : Laugarásbíó , Smárabíó , Háskólabíó , Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri
96 mín
Frumsýnd 13 . júní
Myndin segir sögu þeirra Tamiar og Richards allt frá því að þau hittast fyrst nokkrum mánuðum áður en þau héldu í hina örlagaríku siglingu .
Punktar ....................................................
l Samkvæmt kreditlista Adrift kemur Tami Ashcraft fram í henni , en hún er höfundur bókarinnar sem myndin er byggð á , Red Sky in the Morning , og sú sem Shailene Woodley leikur í henni .
l Sviðsstjóri Adrift var Heimir Sverrisson sem m . a . sviðsetti myndirnar Eiðinn , Ég man þig , Varg og Borgríki . Stjórn kvikmyndatöku var í höndum þrefalda Óskarsverðlaunahafans Roberts Richardson ( Platoon , JFK , The Aviator , Hugo , The Hateful Eight ) og um klippingu sá annar Óskarsverðlaunahafi , John Gilbert ( Hacksaw Ridge ). Tónlistin er svo eftir Volker Bertelmann sem m . a . var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir tónlistina í hinni áhrifaríku Lion . Og þá eru bara fáir upptaldir af því fagfólki sem kom að gerð þessarar myndar .
Hér ræðast þau Shailene Woodley og Baltasar við fyrir tökur á atriði myndarinnar sem gerist auðvitað að mestu leyti á sjó .
Veistu svarið ? Shailene Woodley hóf leikferilinn aðeins 8 ára að aldri og er í uppáhaldi hjá mörgum eftir að hafa sýnt og sannað hæfileika sína í ýmsum myndum á undanförnum árum . Fyrir leik í hvaða mynd var hún tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna árið 2012 ?
Eftir að hafa lent í hinum öfluga fellibyl mæddi það að öllu leyti á Tami að sigla skútunni enda var Richard illa slasaður og gat sig hvergi hreyft .
20 Myndir mánaðarins
The Descendants .