Myndir mánaðarins Júní 2017 tbl. 281 bíóhluti | Page 28

Baby Driver
Það er engin leið að hætta
Baby Driver er nýjasta mynd hins frumlega leikstjóra Edgars Wright sem sló í gegn með myndum eins og Shaun of the Dead , Hot Fuzz , The World ' s End og Scott Pilgrim vs . the World .
Baby Driver segir frá ungum manni , Baby , sem gæddur er ótrúlegum hæfileikum í akstri bifreiða , svo framarlega sem hann er með einhverja góða tónlist í eyrunum . Vegna þessara hæfileika hefur Baby flækst í slagtog með glæpagengi manns sem kallar sig Doc og ekur nú flóttabíl gengisins í hinum ýmsu ránsferðum . En þegar Baby verður ástfanginn af stúlku einni , Deboruh , ákveður hann að hætta í glæpabransanum . Á það vill Doc ekki hlusta og neyðir hann til að halda áfram því annars muni Deborah ekki lifa lengi . Baby neyðist því til að grípa til sinna eigin markvissu ráða ...
Baby Driver
Spenna / Hasar
Aðalhlutverk : Ansel Elgort , Lily James , Kevin Spacey , Jamie Foxx , Jon Hamm , Jon Bernthal , Sky Ferreira og Eiza González Leikstjórn : Edgar Wright Bíó : Smárabíó , Háskólabíó , Laugarásbíó , Borgarbíó Akureyri , Selfossbíó , Skjaldborgarbíó , Ísafjarðarbíó , Króksbíó , Bíóhöllin Akranesi og Eyjabíó
114 mín
Frumsýnd 28 . júní
Baby ásamt hluta af genginu , þeim Bats , Darling og Buddy sem þau Jamie Foxx , Eiza González og Jon Hamm leika , en foringi gengisins , Doc , er leikinn af Kevin Spacey .
Punktar .................................................... l Handrit Baby Driver er eftir Edgar Wright sjálfan og er um leið fyrsta bíómyndahandritið sem hann skrifar alfarið sjálfur .
l Baby Driver var sýnd á South by Southwest-kvikmyndahátíðinni í Austin í Texas í apríl , en hún fer ekki í almenna dreifingu fyrr en í lok júní . Er skemmst frá því að segja að myndin hlaut frábærar viðtökur á hátíðinni og þótt hún væri ekki sýnd oft nægði það til að 1.160 notendur Imdb . com hafa þegar þetta er skrifað , 26 . maí , gefið henni 8,7 í meðaleinkunn . Tíu gagnrýnendur á Metacritic hafa gefið henni 8,1 í einkunn og á Rotten Tomatoes er hún með 10 í einkunn , eða fullt hús , frá 22 gagnrýnendum . Þar hafa enn fremur 6.482 almennir notendur gefið henni 9,7 í meðaleinkunn . Það er því nokkuð ljóst að fjölmargir íslenskir aðdáendur hinna skemmtilegu mynda Edgars geta farið að láta sig hlakka til .
Fyrir utan frumlegan söguþráð inniheldur Baby Driver frábær áhættuakstursatriði að sögn þeirra sem séð hafa .
Veistu svarið ? Ansel Elgort þykir sýna frábæra takta í aðalhlutverki Baby Driver , en hún er sjöunda bíómyndin sem hann leikur í frá því að hann vakti athygli í sinni fyrstu mynd árið 2013 . Hvaða mynd var það ?
Þegar Baby verður ástfanginn af Deboruh , sem Lily James leikur , ákveður hann ( og hún ) að tími sé til kominn að segja skilið við glæpabransann . Það reynist hægara sagt en gert .
28 Myndir mánaðarins
Carrie .