Myndir mánaðarins Júní 2017 tbl. 281 bíóhluti | Page 16

Baywatch
Þú verður að vera á verði
Strandverðinum Mitch Buchannon líst nákvæmlega ekkert á nýjan liðsmann teymis síns , Matt Brody , sem þrátt fyrir að skarta tveimur gullverðlaunum virðist ekki hafa mikið annað til brunns að bera . En þegar þeir Mitch og Matt komast á snoðir um lævísa tilraun hinnar slóttugu Victoriu Leeds til að sölsa undir sig ströndina neyðast þeir til að snúa bökum saman .
Baywatch er eins og flestir vita byggð á feikivinsælum sjónvarpsþáttum sem hófu göngu sína árið 1989 og urðu 292 talsins áður en yfir lauk auk þess að geta af sér ýmsar hliðarafurðir .
Hér er það léttleikinn og húmorinn sem ræður ríkjum en leikstjóri myndarinnar er Seth Gordon sem á að baki myndir eins og Four Christmases , Horrible Bosses og Identity Thief . Þeir sem skemmtu sér vel á þeim myndum eiga nokkuð örugglega eftir að skemmta sér vel á Baywatch enda rekur þar hver kostuleg uppákoman aðra ...
Baywatch
Gaman / Hasar
116 mín
Aðalhlutverk : Dwayne Johnson , Zac Efron , Alexandra Daddario , Priyanka Chopra , Kelly Rohrbach , Ilfenesh Hadera , Jon Bass og Yahya Abdul Leikstjórn : Seth Gordon Bíó : Sambíóin Álfabakka , Egilshöll , Kringlunni , Keflavík og Akureyri , Smárabíó , Laugarásbíó , Ísafjarðarbíó , Selfossbíó , Bíóhöllin Akranesi , Króksbíó og Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 1 . júní
Þeir Mitch og Matt þekkjast ekkert í byrjun myndarinnar og það á ýmislegt eftir að koma upp á áður en Mitch samþykkir að Matt sé hæfur til að fara með hið vandasama starf strandvarðarins .
Punktar .................................................... l Þau David Hasselhoff og Pamela Anderson , sem léku þau Mitch og C . J . í upprunalegu sjónvarpsþáttunum , leika einnig í þessari mynd , en við hér á Myndum mánaðarins erum ekki , þegar þetta er skrifað , viss um hvaða persónur þau leika , þ . e . hvort þau leiki eldri útgáfu af þeim Mitch og C . J ., sjálf sig eða bara gesti á ströndinni – eða einhverja aðra .
Strandvarðateymið í Baywatch samanstendur af þeim C . J ., Stephanie og Summer sem þær Kelly Rohrbach , Alexandra Daddario og Ilfenesh Hadera leika og þeim Mitch , Matt og Ronnie sem þeir Dwayne Johnson , Zac Efron og Jon Bass leika .
Veistu svarið ? Eins og kemur fram hér í punktunum þá léku David Hasselhoff og Pamela Anderson þau Mitch og C . J . í upprunalegu Baywatch-þáttunum . En hvaða leikkonur fóru með hlutverk Stephanie og Summer ?
Það er hin indverskættaða Priyanka Chopra sem leikur Victoriu Leeds , en þar er sannarlega á ferðinni flagð undir fögru skinni .
16 Myndir mánaðarins
Alexandra Paul og Nicole Eggert .