Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb . |
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní |
Vogin 23 . sept . - 23 . okt . |
Þér líður þessa dagana eins og þú |
Vertu ekki alltaf svona svakalega |
Það bendir allt til að þú annað |
sért tannkremstúpa sem búið er |
niðurdregin ( n ), greyið mitt , þú ert |
hvort kaupir þér rútubílafyrirtæki |
að kreista all tannkremið úr . Hafðu |
ekki rúllugardína . Sláðu frekar til |
um miðjan mánuðinn og hellir þér |
ekki of miklar áhyggjur , en forðaðu |
og skráðu þig í boðhlaup hjá boðhlaupsdeild |
út í túristabransann eða gerir það |
þér samt áður en þér verður hent . |
kvenfélags Keflavíkur . |
ekki og haldir áfram í sama ruglinu
.
|
Þegar Laura Dern var þrettán ára neitaði móðir hennar , Diane Ladd , henni um að leika í myndinni Ladies and Gentlemen , the Fabulous Stains eftir Lou Adler vegna þess að tökustaðurinn var svo langt frá heimilinu og Diane vildi ekki að Laura væri svona ung á eigin vegum . Laura greip þá til þess ráðs að stefna móður sinni og krefjast sjálfsforræðis í málinu . Hún vann og lék í myndinni . Þess ber að geta að það greri fljótlega um heilt á milli þeirra mæðgna og þær léku t . d . mæðgur í myndinni Rambling Rose árið 1991 og hlutu báðar tilnefningu til Óskars- og Golden Globe-verðlauna fyrir þá túlkun . |
Jean-Claude Van Damme hefur kvænst fimm sinnum , fyrst Mariu Rodriguez ( 1980-1984 ), svo Cynthiu Derderian ( 1985-1986 ), svo Gladys Portugues ( 1987-1992 ), svo Darcy LaPier ( 1994-1997 ) og svo kvæntist hann Gladys Portugues aftur árið 1999 . Það hjónaband heldur enn og þau eiga tvö börn . |
Ættarnafn Rooney Mara er ekki borið fram sem „ mara “ heldur sem „ mer “. Það gildir að sjálfsögðu líka um nafn systur hennar , Kate Mara . |
Þær Jessica Chastain og Michele Williams eru bestu vinkonur en þær bjuggu saman þegar þær voru að hefja leiklistarferilinn og eru eins og systur að því er þær segja sjálfar . Svo skemmtilega vildi svo til að þær voru báðar tilnefndar til Óskarsverðlauna 2012 . |
Allison Williams , sem leikur Rose í Get Out , er dóttir sjónvarpsfréttamannsins kunna , Brians Williams , og eiginkonu hans , Jane Gillan . |
Troian Bellisario er yngsta dóttir handritshöfundarins Donalds P . Bellisario sem m . a . skapaði og skrifaði sjónvarpsþættina Magnum , P . I ., Quantum Leap og NCIS .
Franska leikkonan Isabelle Huppert á ásamt Lorenzo syni sínum kvikmyndahúsið Christine 21 í París , en það er í eldgömlum stíl og sérhæfir sig í sýningu á gömlum sígildum myndum .
|