Myndir mánaðarins Júlí 2017 tbl. 282 DVD-VOD-hluti | Page 18
Get Out
Ekki láta blekkjast
Parið Chris og Allison eru ákaflega ástfangin hvort af öðru, en
þau eru hvort af sínum kynþættinum, hann svartur en hún
hvít. Að því kemur að Allison vill kynna Chris fyrir foreldrum
sínum, en af því hefur Chris nokkrar áhyggjur því hann er
hræddur um að foreldrar hennar taki sér ekki vel. Hann verður
samt að láta á það reyna en á heldur betur eftir að sjá eftir því!
Sagan í Get Out er af þeirri gerð sem ekki má segja of mikið frá til að
skemma ekki óvænta atburðarásina fyrir áhorfendum. Þetta er
fyrsta mynd grínistans Jordans Peele sem leikstjóra og það er ljóst
að hann á framtíðina fyrir sér í því hlutverki. Myndin byrjar á léttum
og fyndnum nótum en þróast síðan út í dularfulla og æsispennandi
atburðarás sem kemur áhorfendum gersamlega í opna skjöldu ...
Chris hefur áhyggjur af því að foreldrar Allison munu ekki taka því vel
að hann sé svartur og reynist hafa rétt fyrir sér – og rúmlega það.
Get Out
Punktar ....................................................
Tryllir / Ráðgáta
DVD
HHHHH - Guardian HHHHH - Time HHHH 1/2 - Slate
HHHH 1/2 - Hollywood Reporter HHHH 1/2 - Variety
HHHH 1/2 - R. Stone HHHH - Screen HHHH - Empire
103
mín
Aðalhlutverk: Daniel Kaluuya, Allison Williams, Bradley Whitford,
Catherine Keener, Marcus Henderson, Betty Gabriel og Caleb Landry
Jones Leikstjórn: Jordan Peele Útgefandi: Myndform
20. júlí
Get Out er að margra mati ein besta mynd ársins hingað til. Víst er
að hún skartar einu besta handriti ársins, inniheldur bæði frum-
legan og grípandi söguþráð og svo alveg magnaða fléttu. Þetta er
mynd sem enginn einasti kvikmyndaunnandi má missa af.
l
Jordan Peele segist hafa fengið hugmyndina að sögunni þegar hann
hlustaði á umræður fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2008
um hvort væri betra að fá konu sem forseta eða svartan karl. Þess má
geta að móðir Jordans var svört en faðirinn hvítur og sjálfur er Jordan
í sambúð með hvítri konu, grínleikkonunni Chelsea Peretti.
l
Foreldrar Allison eru leiknir af Bradley Whitford og Catherine Keener.
Veistu svarið?
Leikstjóri Get Out og handritshöfundur, Jordan
Peele, hefur hingað til verið þekktastur sem gam-
anleikari, fyrst í MADtv-þáttunum, síðan í grín-
þáttunum Key and Peele og í bíómynd sem gerði
það gott í bíó og á vod í fyrra. Hvað heitir hún?
Til að byrja með virðist allt vera með felldu á heimili
foreldra Allison en annað á eftir að koma á daginn.
Keanu.
18
Myndir mánaðarins