Myndir mánaðarins Júlí 2017 tbl. 282 DVD-VOD-hluti | Page 13

Una Í leit að svörum
Awakening the Zodiac Hættulegasti fjöldamorðingi heims er mættur – aftur !
Una – Awakening the Zodiac
VOD
Aðalhl .: Rooney Mara , Ben Mendelsohn og Riz Ahmed Leikstjórn : Benedict Andrews Útgefandi : Myndform
Drama
VOD
95 mín
7 . júlí
Aðalhl .: Shane West , Leslie Bibb , Matt Craven og Nicholas Campbell Leikstj .: Jonathan Wright Útg .: Sena
Spenna / Ráðgáta
97 mín
13 . júlí
Una Í leit að svörum
Hinum fimmtuga Ray bregður heldur betur í brún þegar hin 27 ára Una kemur á vinnustað hans , en hana hafði Ray misnotað þegar hún var 12 ára .
Una er mögnuð gæðamynd , þrungin spennu og tilfinningahita umfram það sem áhorfendur eiga að venjast og áhrifarík í meira lagi . Fimmtán ár hafa liðið síðan Ray misnotaði Unu og var hann dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir brotið . Eftir að hafa fengið frelsi sitt á ný skipti hann um nafn og heimili , kvæntist og hefur byggt upp frama á núverandi vinnustað . Þegar Una , sem hefur leitað hans um langa hríð , birtist þar og krefst svara má segja að veröld þeirra beggja fari á hvolf , en hvorki eiginkona Rays né vinnufélagar þekkja fortíð hans ...
Punktar ............................................................................................ HHHH1 / 2 - Screen HHHH- IndieWire HHHH - Hollywood Reporter
l Una er byggð á víðfrægu leikriti skoska rithöfundarins Davids Harrower , Blackbird , en það var m . a . sett upp á Broadway í fyrra með þeim Jeff Daniels og Michelle Williams í hlutverkum þeirra Rays og Unu . Voru þau bæði tilnefnd til Tony-verðlaunanna fyrir leikinn .
l David Harrower , sem skrifar sjálfur handritið að myndinni , sótti innblásturinn að efni leikritsins í frægt mál Bandaríkjamannsins Tobys Studebaker sem árið 2003 nam 12 ára breska stúlku á brott og fór með hana til Parísar í fimm daga .
Þau Rooney Mara og Ben Mendelsohn þykja sýna afburðaleik í þessari mögnuðu mynd .
Awakening the Zodiac Hættulegasti fjöldamorðingi heims er mættur – aftur !
Þegar hjónin Mick og Zoe finna vísbendingar um hver Zodiac-morðinginn er ákveða þau að handsama hann sjálf í von um vegleg peningaverðlaun .
Awakening the Zodiac er glæný mynd eftir Jonathan Wright og þykir hún bæði þrælspennandi og fyrirtaks ráðgáta . Í myndinni kynnumst við hjónunum Mick og Zoe sem dag einn finna filmur sem þeim þykir sýnt að gefi góðar vísbendingar um hver Zodiac-morðinginn er . Í stað þess að afhenda lögreglu fundinn ákveða þau að rannsaka málið sjálf til að fá fullvissu um grun sinn og til að geta gert kröfu til verðlaunafjársins , 100 þúsund dollara sem alríkislögreglan hefur heitið hverjum þeim sem getur komið upp um Zodiac-morðingjann . Sér til aðstoðar fá þau vin Micks , Harvey , en rannsóknin á heldur betur eftir að fara á annan veg en þau vonuðu ...
Punktar ............................................................................................ l Segja má að fjöldamorðin sem urðu þekkt sem Zodiac-morðin á sjöunda áratug síðustu aldar vegna þess að morðinginn sendi fjölmiðlum bréf sem innihéldu m . a . tákn úr stjörnufræði séu enn þann dag hin mesta ráðgáta sem þúsundir hafa reynt að komast til botns í án árangurs . Í bréfunum fullyrti morðinginn að hann hefði myrt 37 manneskjur en sýnt þykir að hann hafi myrt þrjá karla og tvær konur auk þess sem tvö af fórnarlömbum hans lifðu af við illan leik . Þess utan leikur grunur á að hann hafi framið a . m . k . fimm önnur morð , en það hefur aldrei verið sannað með afgerandi hætti .
Leslie Bibb og Shane West leika hjónin Zoe og Mick í Awakening the Zodiac .
Myndir mánaðarins 13