Myndir mánaðarins Júlí 2017 tbl. 282 DVD-VOD-hluti | Page 10

Kill ’ em All
Certain Woman Stundum geta rangar ákvarðanir leitt til réttrar niðurstöðu
Kill ’ em All – Certain Woman
Kill ’ em All
Eins manns her
Til að geta hefnt sín á mafíuforingjanum sem myrti föður hans ákvað Philip að smygla sér inn í lífvarðasveit hans . Og nú er komið að skuldadögunum !
Hasar- og slagsmálaunnendur , og þá ekki síst aðdáendur bardagameistarans Jeans-Claude Van Damme og myndanna sem hann hefur leikið í fá mikið fyrir sinn snúð í þessari glænýju mynd Peters Malota sem kemur á VOD-leigurnar 6 . júlí . Í henni leikur Van Damme mann að nafni Philip sem hefur einsett sér að þurrka út heilt mafíugengi , að mafíuforingjanum meðtöldum , í hefndarskyni fyrir dauða föður síns . Til að byrja með virðist atlaga hans runnin út í sandinn þegar hann særist alvarlega , en Philip er ekki mættur á svæðið til að gefast upp !
Punktar ............................................................................................ l Takið eftir syni Jeans-Claude Van Damme , Kris Van Damme , í hlutverki Dusans .
VOD
Aðalhl .: Jean-Claude Van Damme , Peter Stormare og Maria C . Alonso Leikstj .: Peter Malota Útgef .: Sena
Hasarmynd
96 mín
6 . júlí
104 mín
Aðalhlutv .: Michelle Williams , Kristen Stewart og Laura Dern Leikstjórn : Kelly Reichardt Útgefandi : Sena
Drama
VOD
6 . júlí
Þótt Philip eigi við ofurefli að etja leggur hann eitilharður til atlögu .
Certain Woman Stundum geta rangar ákvarðanir leitt til réttrar niðurstöðu
Þrjár sögur af fjórum konum sem búa í norðvestanverðu Montana-ríki og eiga það sameiginlegt að þurfa að taka afdrifaríka ákvörðun um framtíðina .
Certain Woman er margföld verðlaunamynd eftir Kelly Reichardt þar sem áhorfendum er boðið að kynnast fjórum konum og glímu þeirra við ólíkar aðstæður sínar . Þetta eru lögfræðingurinn Laura sem er kölluð út þegar einn af skjólstæðingum hennar fremur alvarlegan glæp , bóndakonan Gina sem stendur andspænis mikilvægri viðskiptaákvörðun sem um leið snertir hennar persónulega líf verulega og lögfræðineminn Elizabeth sem tekið hefur að sér kennslu heima hjá sér og lendir í óvæntu sambandi við einn af nemendunum , hina feimnu og einmana Jamie sem Lily Gladstone leikur . Hvað myndir þú gera í sporum þessara kvenna ?
Punktar ............................................................................................ HHHHH - Washington Post HHHHH- Variety HHHHH - L . A . Times HHHH1 / 2 - R . Ebert . com HHHH1 / 2 - Rolling Stone HHHH - Total Film HHHH - Empire HHHH - Guardian HHHH - Time Out HHHH - Slate
l Eins og sést á stjörnugjöfinni hér fyrir ofan hefur Certain Woman hlotið afburðadóma virtustu gagnrýnenda , en á Metacritic er hún í heild með 8,2 í meðaleinkunn .
l Myndin er byggð á smásögum eftir Maile Meloy sem er fædd og uppalin í Montana .
l Segja má að leikstjórinn og handritshöfundurinn Kelly Reichardt hafi sérhæft sig í að gera kvikmyndir um fólk , aðallega konur , frá norðvesturhluta Bandaríkjanna , en hún á m . a . að baki verðlaunamyndirnar Wendy and Lucy og Meek ’ s Cutoff .
Kristen Stewart leikur eina af aðalpersónum myndarinnar .
10 Myndir mánaðarins