Myndir mánaðarins Janúar 2018 tbl. 288 Bíó | Page 6
Bestu myndir ársins?
Eins og áður snúast áramótin og janúar-
mánuður í kvikmyndaheiminum að stóru
leyti um að gera upp árið sem er nýliðið og
heiðra þá og þær sem þóttu skara fram úr
á sínum sviðum innan kvikmyndageirans,
hvort sem þau stóðu fyrir framan eða aftan
vélarnar. Um leið eru kvikmyndirnar sjálfar
vegnar og metnar af hinum ýmsu fag- og
áhugasamtökum, gagnrýnendum og al-
mennu áhugafólki sem reyna síðan að komast
að niðurstöðu um hver sé besta mynd ársins.
Í þeim efnum sýnist að sjálfsögðu sitt hverjum
enda er smekkur fólks eins misjafn og það er
margt auk þess sem góðu myndirnar eru bara
svo margar að það er í raun útilokað að það
sé hægt að gera upp á milli þeirra þannig að
sanngjarnt sé í öllum tilfellum. Samt er það
nú gert og eins og alltaf eru það stóru verð-
launahátíðirnar þrjár sem fá mesta athygli,
þ.e. Golden Globe-verðlaunin, bresku BAFTA-
verðlaunin og svo Óskarsverðlaunin sjálf sem
að þessu sinni verða afhent sunnudaginn 4.
mars en tilnefningar til þeirra verða gerðar
opinberar 23. janúar. Tilnefningar til BAFTA-
verðlaunanna verða hins vegar ljósar 10.
janúar og fer sú verðlaunaafhending fram
sunnudaginn 12. febrúar.
Þann 7. janúar verður Golden Globe-hátíðin
haldin með pompi og prakt á Hilton-hótelinu
í Beverly Hills. Það er spjallþáttastjórnandinn
Seth Meyers sem verður kynnir hátíðarinnar
í fyrsta sinn og heiðursgestur að þessu sinni
er Oprah Winfrey sem veitir Cecil B. DeMille-
verðlaununum viðtöku fyrir framlag sitt til
kvikmyndaiðnaðarins. Tilnefningarnar til
verðlaunanna voru gerðar kunnar fyrir jól,
en Golden Globe-verðlaunahátíðin er eins
og flestir vita ólík bæði BAFTA- og Óskars-
hátíðinni að því leyti að á henni fá tvær
myndir verðlaun sem besta mynd ársins,
annars vegar í flokki dramamynda og hins
vegar í flokki gaman- eða tónlistarmynda.
Í þessum flokkum var það að þessu sinni
6
Myndir mánaðarins
myndin The Shape of Water sem fékk flestar
tilnefningar, sjö talsins, en fyrir utan að vera
tilnefnd sem besta myndin er hún einnig
tilnefnd fyrir handritið, tónlistina, leikstjórn,
besta leik í aukahlutverkum karla og kvenna
og fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna.
Your Name sem er tilnefnd fyrir besta leik í
aðal- og aukahlutverkum karla, The Greatest
Showman sem er tilnefnd fyrir besta lag og
best