Myndir mánaðarins Janúar 2018 tbl. 288 Bíó | Page 22

Father Figures Leitin að pabba Tvíburarnir Kyle og Peter eru í brúðkaupi móður sinnar þegar hún ljóstrar því loksins upp að hún hefur alla tíð logið því að þeim að faðir þeirra sé dáinn. Í raun hefur hún ekki hugmynd um hver hann var og að hann gæti þess vegna enn verið á lífi. Gamanmyndin Father Figures lofar góðu enda eru í aðalhlutverkum tveir af skemmtilegustu gamanleikurum Bandaríkjanna, Owen Wil- son og Ed Helms, ásamt Glenn Close, J.K. Simmons, Ving Rhames og fótboltastjörnunni fyrrverandi en sívinsælu, Terry Bradshaw. Þegar þeir Kyle og Peter átta sig á því að faðir þeirra gæti enn verið á lífi kemur ekkert annað til greina en að halda í leiðangur og finna hann. Með gamla ljósmynd af móður þeirra í farteskinu og óljósa staðsetningu hennar þegar þeir komu undir leggja þeir í hann en komast brátt að því að leitin er mun flóknari en þeir voru að vona ... Þegar tvíburarnir Kyle og Peter komast að því að faðir þeirra er kannski enn á lífi leggja þeir í leiðangur til að finna hann. Father Figures Gamanmynd 113 mín Aðalhlutverk: Owen Wilson, Ed Helms, Glenn Close, J.K. Simmons, Ving Rhames, Christopher Walken, Terry Bradshaw og Katt Williams Leikstjórn: Lawrence Sher Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Ísafjarðarbíó, Selfossbíó, Eyjabíó, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó Frumsýnd 5. janúar Punktar .................................................... Terry Bradshaw, sem leikur sjálfan sig í Father Figures, er fyrrverandi fyrirliði Pittsburgh Steelers í bandaríska fótboltanum og var á há- tindi ferils síns á áttunda áratug síðustu aldar þegar Steelers urðu fjórum sinnum Bandaríkjameistarar á sex árum. Terry lagði hjálm- inn á hilluna árið 1983 og hefur síðan verið lykilmaður í lýsingum bandarísku sjónvarpsstöðvanna á bandaríska fótboltanum og vin- sæll álitsgjafi, enda fjallhress og skemmtilegur náungi. l Þetta er fyrsta mynd kvikmyndatökustjórans Lawrence Sher sem leikstjóra en handritshöfundur er Justin Malen sem skrifaði m.a. einnig handrit gamanmyndarinnar Office Party . l J.K. Simmons leikur hinn skapmikla Ronald sem gæti verið faðirinn. Veistu svarið? Ed Helms var búinn að vera nokkur ár í bransanum þegar segja má að hann hafi slegið í gegn á tvenn- um vígstöðvum í einu, annars vegar í Hangover- myndunum og hins vegar sem Andy Bernard í þekktum sjónvarpsþáttum. Hvaða þáttum? Terry Bradshaw leikur sjálfan sig í myndinni, en hann man vel eftir móður bræðranna og getur kannski komið þeim á sporið. The Office. 22 Myndir mánaðarins