Myndir mánaðarins Febrúar 2017 tbl. 277 Bíóhluti | Page 26

Manchester by the Sea Drama
Manchester by the Sea
Lífið gefur og lífið tekur
Þegar bróðir Lees Chandler deyr er hann beðinn um að taka að sér son hans , Patrick . Þá ósk á Lee afar erfitt með að uppfylla .
Manchester By the Sea er sannkallað snilldarverk og án nokkurs vafa ein af bestu myndum ársins 2016 . Hún segir frá Lee Chandler sem í kjölfar skelfilegs atburðar og persónulegs áfalls hefur nánast dregið sig í hlé frá umheiminum . Þegar hann stendur skyndilega frammi fyrir beiðni um ábyrgð sem hann getur hvorki hafnað né höndlað má segja að hann sé neyddur til að endurmeta allt sitt ... Casey Affleck leikur Lee Chandler af stakri snilld í Manchester By the Sea og Lucas Hedges gefur honum lítið eftir í hlutverki Patricks .

Manchester by the Sea Drama

Aðalhlutverk : Casey Affleck , Michelle Williams , Kyle Chandler , Lucas Hedges , Gretchen Mol , Matthew Broderick og Heather Burns Leikstjórn : Kenneth Lonergan Bíó : Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri
133 mín
Frumsýnd 24 . febrúar
Punktar ....................................................
HHHHH - Empire HHHHH - Variety HHHHH - Guardian HHHHH - Los Angeles Times HHHHH - New York Times HHHHH - Entertainment Weekly HHHHH - Total Film HHHHH - Screen HHHHH - Time Out HHHHH - R . Stone l Þótt leikstjórinn Kenneth Lonergan sé einn skrifaður fyrir handriti myndarinnar er hugmyndin að grunnsögunni komin frá John Krasinski sem bar hana undir Matt Damon árið 2011 . Matt leist svo vel á að hann bað Kenneth Lonergan að skrifa handritið og hugðist upphaflega bæði leikstýra myndinni , framleiða hana og leika aðalhlutverkið sjálfur . Vegna þess að Kenneth var upptekinn við annað fór verkið á bið og þegar hann loksins lauk við handritið hafði Matt ekki lengur tíma fyrir annað en framleiðsluna . Hann lagði því til að Kenneth myndi sjálfur leikstýra myndinni og fékk æskuvin sinn Casey Affleck til að taka að sér aðalhlutverkið .
l Manchester By the Sea hefur fengið fimm stjörnu dóma hjá flestum virtustu kvikmyndagagnrýnendunum og er samtals með 9,6 í einkunn á Metacritic . Betra verður það varla . Myndin var enn fremur tilnefnd til fimm Golden Globe-verðlauna ( og Casey Affleck hlaut þau fyrir besta leik í aðalhlutverki ) og er nú tilnefnd til sex Óskarsverðlauna , þ . e . fyrir handritið , leikstjórnina , leik þeirra Caseys Affleck , Michelle Williams og Lucasar Hedges , og sem besta mynd ársins . Hún er einnig tilnefnd til fimm BAFTA-verðlauna . Þetta er mynd sem allir ættu að sjá í bíó .
Michelle Williams leikur fyrrverandi eiginkonu Lees og barnsmóður en þau eiga að baki hörmulega reynslu .
Veistu svarið ? Lucas Hedges , sem leikur Patrick , þykir eitt mesta leikaraefni Bandaríkjanna í dag en hann er sonur rithöfundarins Peters Hedges sem m . a . skrifaði söguna og handritið að myndinni What ' s Eating Gilbert Grape . Hver leikstýrði henni ?
Myndin dregur nafn sitt af samnefndum sex þúsund manna strandbæ í Massachusetts og bæði gerist þar og er tekin upp þar .
26 Myndir mánaðarins
Lasse Hallström .