Myndir mánaðarins Febrúar 2017 tbl. 277 Bíóhluti | Page 22

T2 Trainspotting Gamandrama
T2 Trainspotting
Hvað er að frétta ?
Það eru liðin 20 ár síðan við kynntumst hinum kostulegu karakterum í myndinni Trainspotting og kominn tími til að endurnýja kynnin . Hvernig skyldi þeim Renton , Spud , Sick Boy , Diane , Gail og Begbie hafa gengið og hvað eru þau öll að bardúsa núna ?
Tuttugu ár eru liðin síðan Mark Renton kom á heimaslóðirnar og hitti þá Sick Boy , Begbie og Spud . Í ljós kemur að þótt margt í lífi þeirra hafi breyst er annað sem situr enn í sama farinu og um leið og þeir endurnýja kynnin , ásamt fleiri gömlum félögum eins og Gail og Diane , skjóta ýmis fortíðarmál upp kollinum – flest óuppgerð ...
Þeir Spud , Renton , Simon ( Sick Boy ) og Begbie hafa vafalaust um nóg að tala eftir tuttugu ára aðskilnað .

T2 Trainspotting Gamandrama

117 mín
Aðalhlutverk : Ewan McGregor , Ewen Bremner , Jonny Lee Miller , Robert Carlyle , Shirley Henderson , Kelly Macdonald og Kevin McKidd Leikstjórn : Danny Boyle Bíó : Smárabíó , Háskólabíó , Borgarbíó Akureyri , Selfossbíó , Króksbíó , Skjaldborgarbíó og Ísafjarðarbíó
Frumsýnd 17 . febrúar
Punktar ....................................................
HHHHH - Independent HHHHH - The Culture Trip HHHH - Time Out HHHH - Total Film HHHH - Guardian HHHH - Mirror HHHH - The Times HHHH - The Herald
l Bók skoska rithöfundarins Irvines Welsh , Trainspotting , kom út árið 1993 og var hans fyrsta bók . Bókin innihélt sjálfstæðar en þó samtvinnaðar sögur af nokkrum ungmennum í Leith-hverfinu í Edinborg sem áttu það sameiginlegt að vera fíklar af einhverju tagi , vinir fíkla eða tengjast fíklum á einhvern hátt . Bókin þykir skrifuð af stakri málsnilld þar sem Irvine blandar saman mismunandi enskum málvenjum og „ hreimum “ þannig að úr verður sérbreskt orðasalat . Af þeim sökum var talað um á sínum tíma að bókin væri í raun óþýðanleg á önnur tungumál og þeir voru margir sem töldu að það væri heldur ekki hægt að kvikmynda hana svo vel væri . En Danny Boyle afsannaði það með samnefndri mynd .
l Þess má geta að Irvine Welsh leikur sjálfur eina persónuna í myndinni , rétt eins og hann gerði í þeirri fyrri , Mikey Forrester .
Við vitum ekki nákvæmlega hvað gengur á í þessu atriði þar sem þeir Spud og Renton eru á harðahlaupum undan einhverjum .
Veistu svarið ? Trainspotting var önnur mynd Dannys Boyle í fullri lengd og skipaði honum á bekk með bestu leikstjórum heims þar sem hann hefur setið allar götur síðan . En hvað hét fyrsta mynd hans ?
Robert Carlyle lék hinn léttgeggjaða Begbie í Trainspotting og mætir hér aftur til leiks . Spurning hvað er að honum núna ?
22 Myndir mánaðarins
Shallow Grave .