Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins

Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb .
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní
Vogin 23 . sept . - 23 . okt .
Þú lætur ekki þitt eftir liggja , og manst eftir að ganga frá skærunum og límbandsstatífinu aldrei þessu vant . Þú gefur öllum í fjölskyldunni spiladósir í jólagjöf .
Það bendir ýmislegt til að þú lendir í talsverðum vatnavöxtum í desember , annað hvort fyrir austan eða þegar þú heimsækir einhvern út á nes . Þú færð steypubíl í skóinn .
Leggðu áherslu á að pakka öllum jólagjöfunum þínum inn í hvítan jólapappír með gylltum stjörnum og setja á þá silfraða borða því þá mun allt annað ganga upp hjá þér .
Fiskarnir 19 . feb . - 20 . mars Það eru talsvert margar jólakúlur í stjörnukortunum hjá þér þessa dagana sem ætti að gefa þér einhverjar vísbendingar um hvað muni gerast hjá þér á næstunni .
Hrúturinn 21 . mars - 19 . apríl
Hrútar sem komnir eru með skalla ættu að íhuga að fjárfesta í kollu fyrir jólin . Aðrir hrútar eru áminntir um að bursta í sér tennurnar , helst með meðalmjúkum tannbursta .
Nautið 20 . apríl - 20 . maí
Ef þú heldur þig á mottunni meiri hluta mánaðarins þá er aldrei að vita nema þú fáir tólf-mánaða bíókort í jólagjöf . Væri það ekki gaman ? Farðu út að hlaupa ef þér leiðist .
Krabbinn 22 . júní - 22 . júlí Ungt fólk sem fætt er í krabbamerkinu þarf að spyrja sig margra spurninga upp úr tíunda desember . Íhugaðu að breyta algerlega um stefnu á næstu gatnamótum .
Ljónið 23 . júlí - 22 . ágúst
Mundu hvað þú gerðir við merkimiðana frá því í fyrra áður en þú kaupir fleiri . Leggðu áherslu á að fá mótorhjól í jólagjöf og þá er aldrei að vita nema einhver gefi þér skíði .
Meyjan 23 . ágúst - 22 . sept .
Desember er ekki rétti tíminn til að fá í bakið og því skaltu fresta því fram í janúar . Þú lærir að prjóna og gefur öllum sem þú þekkir græna eða rauðleita lopasokka í jólagjöf .
Sporðdrekinn 24 . okt . - 21 . nóv . Þú færð alveg frábæra hugmynd í jólagjafastússinu en gleymir henni áður en þú kemur heim . Þú gerir allt sem þú getur til að gleðja aðra , sérstaklega fólk sem býr á Dalvík .
Bogmaðurinn 22 . nóv . - 21 . des .
Stjörnurnar gefa greinilega í skyn að þú þurftir að búa þig undir eitthvað sem annað hvort kemur eða kallar þann átjánda . Ef þú átt bíl þá þarftu að láta tékka á pönnunni .
Steingeitin 22 . des . - 19 . jan .
Það gengur allt upp hjá þér í desember nema eitthvað plott varðandi einhvern Hallmund . Hættu bara við það . Mundu að ganga hægt inn um allar dyr . Gleðileg jól .

Minningar mánaðarins

Fyrsta leikhlutverk Brie Larson var í þáttum Jays Leno árið 1997 þegar hún var átta ára . Þá lék hún í nokkrum grínauglýsingum fyrir The Tonight Show og er myndin hér að ofan úr einni þeirra . Við vitum því miður ekki hvað stúlkan sem lék með henni í þessari heitir .
Þau Dylan O ’ Brien og Britt Robertson hittust fyrst árið 2011 þegar þau léku Aubrey og Dave sem urðu ástfangin hvort af öðru í myndinni The First Time . Þau urðu svo ástfangin hvort af öðru í alvörunni og hafa verið saman síðan þá .
Þegar Bill Nighy útskrifaðist úr framhaldsskóla var hann ákveðinn í að verða blaðamaður . Þegar það gekk ekki upp ákvað hann að verða rithöfundur enda hafði hann unun af því að lesa góðar skáldsögur . Hann hefur sjálfur sagt frá því að til að fá andann yfir sig hafi hann eitt sinn skrapað saman þeim pundum
sem hann gat og haldið til Parísar . Þar leigði hann sér herbergi með rúmi og skrifborði og hóf að skrifa skáldsöguna „ Skáldsagan mikla “ eða The Great Novel . Eftir nokkrar vikur var peningurinn hins vegar búinn og þurfti Bill að leita til breska sendiráðsins til að komast aftur heim . Og þar sem hann hafði aldrei komist lengra með skáldsöguna en að ákveða titilinn hætti hann við rithöfundardraumana og skellti sér í leiklistarnám í staðinn . þetta var árið 1971 þegar hann var 22 ára og það fylgir sögunni að sendiráðið hafi sent pabba hans reikninginn sem var upp á 25 pund .
Shia LaBeouf var aðeins sextán ára þegar hann tókst á við sitt fyrsta aðalhlutverk í bíómynd eftir að hafa leikið lítil hlutverk í ýmsum sjónvarpsþáttum , t . d . ER , Freaks and Geeks og The X-Files , frá ellefu
ára aldri . Myndin var Holes sem varð síðan ákaflega vinsæl enda sérlega góð , en við gerð hennar gekk mótleikari hans , Jon Voight , honum nánast í föðurstað og hefur Shia síðan kallað hann sinn annan föður . Hann er því í þeim skilningi stjúpbróðir Angelinu Jolie .
Jake Gyllenhaal , sem verður 37 ára 19 . desember , á 27 ára leikferil að baki enda lék hann í sinni fyrstu mynd , City Slickers , aðeins tíu ára að aldri . Hann sló svo í gegn 21 árs í sínu fyrsta aðalhlutverki , þ . e . í myndinni Donnie Darko , þar sem hann lék á móti systur sinni Maggie í fyrsta og eina skiptið hingað til .
Nú eru liðin 100 ár síðan Charlie Chaplin sendi frá sér stuttmyndina Easy Street þar sem karakterinn sem hann er þekktastur fyrir að hafa skapað , umrenningurinn útskeifi með hattinn og stafinn , gerðist lögreglumaður og kom á lögum og reglu við samnefnt stræti þar sem ónefnd ofbeldisbulla sem Eric Campbell lék ógnaði nágrönnum sínum stanslaust . Þegar þarna var komið sögu á ferli Chaplins voru þrjú ár liðin síðan hann birtist fyrst sem umrenningurinn í myndinni Strange Predicament eftir Mabel Normand og hafði Chaplin síðan gert nokkrar stuttmyndir um hann . Segja má að vinsældir Easy Street hafi endanlega fest þennan karakter í sessi enda sneri Chaplin sér alfarið að gerð mynda um hann eftir þetta og átti á næstu 19 árum eftir að skapa með honum nokkrar af bestu bíómyndum sögunnar .
6 Myndir mánaðarins