Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 43

Stór og Smár Átta nýir þættir um bestu vinina tvo
Stór og Smár
Stór og Smár Átta nýir þættir um bestu vinina tvo
Breskir þættir með íslensku tali um þá félaga Stóran og Smáan sem bralla ýmislegt skemmtilegt saman alla daga og lenda í fjölbreyttum ævintýrum .
Þættirnir um Stóran og Smáan höfða til barna á leikskólaaldri og hafa náð miklum vinsældum víða um heim . Í þáttunum taka þeir félagar alltaf upp á einhverju nýju og þótt þeir séu samhentir þá eru þeir ekki alltaf sammála um leiðirnar . Alltaf skal þó allt fara vel og alltaf skulu þeir ná saman í lokin , enda báðir samningsfúsir .
Á þessari VOD-útgáfu er að finna þætti 57 til 63 um þá félaga sem eru hver öðrum frumlegri . Þess má geta að þættirnir hlutu BAFTA-verðlaunin árið 2009 .
VOD
85 mín
Brúðumyndir með íslensku tali um félagana Stóran og Smáan og uppátæki þeirra Útgefandi : Myndform
Barnaefni
29 . desember
Þeir Jason Momoa og Ben Affleck sýndu tennurnar á forsýningu Justice League í Dolbykvikmyndahúsinu í Hollywood 13 . nóvember , þar sem þeir leika þá Aquaman og Batman .
Jennifer Lawrence laumar sér hér inn í myndatöku af Emmu Stone á AMPAS-verðlaunahátíðinni í Los Angeles 11 . nóvember , en hún er undanfari Óskarsverðlaunanna á næsta ári .
Natalie Portman gefur hér á Jake Gyllenhaal auga á hátíð kvikmyndatökumanna í Los Angeles 10 . nóvember , en þau eru miklir vinir síðan þau léku saman í myndinni Brothers árið 2009 .
Myndir mánaðarins 43