Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 41

Tashi – Love on the Run Tashi Í ævintýraheimum getur allt gerst Ástralskir teiknimyndaþættir um hinn hugrakka Tashi sem býr í sannköll- uðu ævintýralandi þar sem furðuverur eru á hverju strái og allt getur gerst. Teiknimyndaþættirnir um Tashi og frænda hans, hinn hug- myndaríka Jack sem heimsækir Tashi oft og tíðum, hafa notið mikilla vinsælda á sjónvarpsstöðvum enda litríkir og viðburða- ríkir svo af ber auk þess sem húmorinn er í hávegum hafður. Þættirnir eru um tólf mínútur að lengd hver og segja frá þeim ótrúlegu ævintýrum sem þeir frændur lenda í, en í þeim þurfa þeir oft að leysa vandasamar þrautir til að sleppa heilir á húfi frá furðulegustu aðstæðum og enn furðulegri ve