Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 37

Myndasyrpa Jessica Chastain brosti breitt á AFI-verðlauna- hátíðinni í Los Angeles 16. nóvember þar sem nýjasta mynd hennar, Molly’s Game eftir Aaron Sorkin, hlaut áhorfendaverðlaunin. Mark Wahlberg stillti sér upp ásamt nokkrum aðdáendum í London 16. nóvember þar sem hann var mættur til að vera viðstaddur forsýningu myndarinnar Daddy’s Home 2. Þau Diane Kruger og leikstjórinn Fatih Akin voru eins og sést ánægð með þýsku BAMBI- menningar- og fjölmiðlaverðlaunin sem þau hlutu 16. nóvember fyrir myndina In the Fade. Breska leikkonan unga, Millie Bobby Brown, er einnig eftirsótt fyrirsæta og var stödd í Sydney í Ástralíu 16. nóvember að taka upp myndasyrpu fyrir þarlent tískuvöruhús. Þær Juno Temple og Kate Winslet sem leika saman í nýjustu mynd Woodys Allen, Wonder Wheel, stilla sér hér upp í New York 14. nóvem- ber í tengslum við kynningu á myndinni. Hjónin Keith Urban og Nicole Kidman voru mætt á verðlaunahátíð Glamour-tímaritsins í New York 13. nóvember, en þar eru konur sem skarað hafa fram úr á árinu heiðraðar. Myndir mánaðarins 37