Myndir mánaðarins Desember 2017 tbl. 287 DVD-VOD | Page 33

A Husband for Christmas
A Husband for Christmas
A Husband for Christmas
Freistingarnar eru til að falla fyrir þeim
Brooke Harris telur sig himin hafa höndum tekið þegar henni er boðin stöðuhækkun innan fyrirtækisins sem hún vinnur hjá og tvöföldun á launum . Vandamálið er að upphefðinni fylgir óvenjulegt og bindandi skilyrði .
Skilyrðið sem forstjóri fyrirtækisins setur er að Brooke gangi í hjónaband með sér algjörlega ókunnugum manni sem að öðrum kosti yrði vísað úr landi . Forstjórinn hefur hagsmuna að gæta í málinu og þótt Brooke lítist ekkert á þetta í byrjun skiptir hún um skoðun þegar hún hittir manninn , Roger , og kemst að því að hann er hinn vænsti náungi . Til að fléttan gangi upp þurfa þau líka að búa saman og svo fer að þau gera með sér samning um að ganga í hjónaband .
Það líður að jólum og eftir því sem þau Roger og Brooke eyða meiri tíma saman fer samband þeirra að þróast nákvæmlega í þá átt sem forstjórinn vildi !
VOD
87 mín
Aðalhl .: Vivica A . Fox , Ricco Ross , Eric Roberts og Dominique Swain Leikstj .: David DeCoteau Útg .: Sena
Jólamynd
14 . desember
Ricco Ross og Vivica Fox leika „ hjónin “ Roger og Brooke í A Husband for Christmas .
Fyrirsætan , fimleikadrottningin og leikkonan Kate Upton var hamingjusöm á röltinu í New York 17 . nóvember ásamt Justin Verlander , en þau gengu í hjónaband 4 . nóvember .
Og talandi um ný hjónabönd má geta þess að þau Michael Fassbender og Alicia Vikander giftu sig með mikilli leynd á dögunum á Ibiza og er nú beðið eftir brúðkaupsmyndunum .
Og Patton Oswalt , sem missti eiginkonu sína Michelle McNamara í apríl 2016 , hefur fundið ástina á ný , en hann kvæntist leikkonunni Meredith Salenger þann 6 . nóvember .
Myndir mánaðarins 33